Innlent

Lögregla lýsir eftir vitnum að mannaferðum við Stardal

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá vettvangi á laugardaginn.
Frá vettvangi á laugardaginn. Vísir/Böddi
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að mannaferðum við bæinn Stardal við Þingvallaveg í Mosfellsdal um helgina. Íbúðarhús og útihús fóru illa í bruna sem tilkynnt var um klukkan 9:59 á laugardagsmorgun.

Ásgeir Pétur Guðmundsson, lögreglufulltrúi á höfuðborgarsvæðinu, segir að allir möguleikar séu kannaðir varðandi upptök eldsins.

En er grunur um íkveikju?

„Við vitum það svo sem ekki. Það er ekki komin niðurstaða tæknideildar,“ segir Ásgeir Pétur.

Halldór Halldórsson, betur þekktur sem Dóri DNA, ólst upp í nágrenninu og var ekki skemmt yfir tíðindunum á laugardaginn. Hann tjáði sig um málið á Twitter og þykir ljóst að kveikt var í húsunum.

https://t.co/DHIaBpxyHz
Það er alveg ljóst að einhver kveikti í Stardal, megi sá hinn sami fara til andskotans.

— Halldór Halldórsson (@DNADORI) January 6, 2018
Enginn bjó í húsinu en þar bjuggu áður hjón sem hættu búskap fyrir einhverjum árum. Enginn var í húsinu né hafði verið í nokkurn tíma.

Aðspurður hvort einhverjar vísbendingar séu um upptök eldsins, hvort bensínbrúsi hafi fundist á vettvangi eða eitthvað slíkt segir Ásgeir svo ekki vera.

Óskað er eftir upplýsingum um mannaferðir á svæðinu frá aðfaranótt föstudags, 5. janúar, til sunnudagsmorguns, 7. janúar. Upplýsingum má koma á framfæri í tölvupósti á netfangið as@lrh.is í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eða í síma 444 1000.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×