Rauðhærðasti Íslendingurinn í skýjunum: "Mér finnst þetta æðislegt" Boði Logason skrifar 7. júlí 2013 15:31 Hafdís var útnefnd rauðhærðasti Íslendingurinn á Írskum dögum á Akranesi um helgina. Mynd/365
Rauðhærðasti Íslendingurinn árið 2013 segist vera himinlifandi með titilinn sem hún hlaut í gær á Írskum dögum á Akranesi. Á hverju ári er keppt um rauðhærðasta Íslendinginn á hátíðinni. Í ár voru tíu keppendur um titilinn og var keppnin hörð. Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri á Akranesi, krýndi sigurvegarann og var það hin þrítuga Hafdís Karlsdóttir sem sigraði. Það er óhætt að segja að Hafdís hafi verið í góðu skapi þegar fréttastofa heyrði í henni eftir hádegi í dag. „Mér finnst þetta æðislegt, ég geng bara út um allt og segi öllum að ég sé rauðhærðasti Íslendingurinn," segir hún. Hún segist alla tíð hafa verið stolt af hárlitnum sínum, og því hafi verið kærkomið að fá titilinn sá rauðhærðasti á landinu. „Manni var strítt svolítið þegar maður var yngri vegna þess að maður var rauðhærður, en síðan þegar maður var kominn í menntaskóla þá fór fólk bara öfunda mann. Fólk er alltaf að segja: Þú ert með svo fallegt hár - Og núna er það orðið þannig þegar fólk er að hrósa hárinu mínu þá segi ég: Já, ég veit það," segir hún. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem hún tekur þátt í keppninni því hún tók einnig þátt fyrir tveimur árum. En hvað ætli hún hafi gert fyrir hárið á sér síðan þá? „Núna var ég fallegri grænni peysu sem hún tengdamamma mín prjónaði fyrir mig, ég held að hún hafi átt eitthvað í sigrinum." Og hún fór ekki tómhent heim og fékk verðlaun í takt við titilinn. „Ég fékk ferð fyrir tvo til Írlands. Núna fer maður og finnur írsku ræturnar,“ segir hún hress að lokum.
Mest lesið Möguleg slit á fríverslunarsamningi við Ísrael tekin fyrir Innlent Einn fluttur á Landspítalann frá Fjallabaki Innlent Þyrlan kölluð út á mesta forgangi Innlent Engin slys á fólki þegar hjólhýsi valt Innlent Syrgja fallið kornabarn: „Það er ekkert plan, engin lausn“ Innlent Ákærðir fyrir hópnauðgun gegn ólögráða stúlku Innlent Aðsetur ríkisstjórnarinnar logar eftir árásir næturinnar Erlent Vilja skylda samskiptaforrit til að skanna einkaskilaboð fólks Erlent Hringveginum lokað vegna umferðarslyss Innlent Labubu bangsar ekki lengur velkomnir í Ísaksskóla Innlent Fleiri fréttir Gleði og samvera í 60 plús leikfimi á Selfossi Syrgja fallið kornabarn: „Það er ekkert plan, engin lausn“ Engin slys á fólki þegar hjólhýsi valt Syrgja fallið kornabarn og fyrsti þúsaldardýrlingurinn Einn fluttur á Landspítalann frá Fjallabaki Kröftug mótmæli brjóti ekki gegn málfrelsi Hringveginum lokað vegna umferðarslyss Þyrlan kölluð út á mesta forgangi Jákvæð gagnvart nýrri atvinnustefnu Frábær og vel heppnuð Ljósanótt Möguleg slit á fríverslunarsamningi við Ísrael tekin fyrir Skoða að rifta fríverslunarsamningi við Ísrael Labubu bangsar ekki lengur velkomnir í Ísaksskóla Fangageymslur fullar eftir erilsama nótt Aðgerðir vegna Gasa, málfrelsi á Íslandi og ný atvinnustefna Ákærðir vegna fölsuðu taflanna tuttugu þúsund „Vona bara að hún grípi til raunverulegra aðgerða sem bíta“ Korn ræktað á um fjögur þúsund hekturum Veltir fyrir sér hvort íslensk íþróttafélög verði af milljörðum Handtekinn undir áhrifum með tvö börn í bílnum Fjölmenn mótmæli og skortur á íslenskukunnáttu þrátt fyrir doktorsnám Ákærðir fyrir hópnauðgun gegn ólögráða stúlku Gullkistan opnuð á Vestfjörðum Sóttu slasaðan ökumann við Surtshelli Gríðarlegur fjöldi á mótmælunum Þjóð gegn þjóðarmorði Tæpir sextíu þúsund fermetrar í eigu ríkisins standa tómir Kennir íslensku en fær ekki ríkisborgararétt að óbreyttu Tvöföldun erlendra fanga á fimm árum: „Þetta er auðvitað gríðarlega hátt hlutfall“ Nöfn myrtra barna verða lesin upp í sjö klukkustundir Eygir vonarneista í fyrsta sinn í marga mánuði Sjá meira