Forsetinn boðar til blaðamannafundar vegna veiðileyfagjaldsins Kristján Hjálmarsson skrifar 9. júlí 2013 11:35 Ólafur Ragnar tekur hér við undirskriftunum.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hefur boðað til blaðamannafundar klukkan 16.15 í dag vegna frumvarps sem miðar að lækkun veiðileyfagjalda sem samþykkt var í síðustu viku. Ríflega 35 þúsund einstaklingar hafa skrifað undir áskorun um að forsetinn neiti að skrifa undir lögin. Þær hafa verið afhentar forsetanum. Ólafur Ragnar hefur bæði fundað með Birgittu Jónsdóttur, þingmanni Pírata, sem og forsvarsmönnun undirskriftasöfnunarinnar.Úr vöndu að ráða Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði, sagðist í samtali við Vísi í síðustu viku eiga erfitt með að segja hvaða ákvörðun Ólafur Ragnar taki. "Miðað við það hvernig Ólafur hefur hagað gjörðum sínum og ummælum í fortíðinni mætti ætla að hann muni synja þessu lagafrumvarpi um undirskrift, það er að segja, ef forsendurnar eru: 35 þúsund undirskriftir gegn lögunum liggja fyrir, 70 prósent þjóðarinnar eru á móti því að lækka auðlindagjaldið, og fyrri ummæli hans sjálfs skipta þarna líka verulegu máli; um þjóðaratkvæðagreiðslur almennt séð, hann hefur lýst því þannig að hann sé eiginlega verkfæri svona undirskriftasafnana við að framkalla þjóðaratkvæðagreiðslur og hann hefur líka lýst því yfir að veiðileyfakerfið henti sérstaklega vel til þjóðaratkvæðagreiðslu. Með alla þessa hluti í huga þá myndi maður ætla að það lægi nokkuð beint við að hann myndi neita að skrifa undir," sagði Gunnar Helgi.Málið ekki einfalt En málið er alls ekki svona einfalt, eins og Gunnar Helgi bendir á: „Á móti kemur að Ólafur Ragnar virðist hafa verið velviljaður þessari stjórnarmyndun, verið í tengslum við þá stjórnmálaforingja sem að henni komu og af þeim sökum telja ýmsir ástæðu til að ætla að hann myndi gjarnan vilja veigra sér við að synja þessu. Þá er spurning hvort hann finni einhvern flöt á því, ef rétt er. Þetta vald sem hann hefur til að synja um undirskrift er hreint geðþóttavald. Þannig að hann þarf í sjálfu sér ekki að búa til merkilegan rökstuðning. En það vill þannig til að hann er flinkur í því að búa til rökstuðning fyrir sínum ákvörðunum – eftir á.“
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Innlent Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur Innlent Fleiri fréttir Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Sjá meira