Flestir telja að Ólafur Ragnar skrifi undir Jakob Bjarnar skrifar 9. júlí 2013 13:08 Veðmálastuðlar benda til þess að fleiri geri ráð fyrir að Ólafur Ragnar skrifi undir lög ríkisstjórnarinnar og vísi þeim ekki til þjóðarinnar.
Vel yfir hundrað manns hafa nú tekið þátt í veðmálinu sem Betsson efnir til um hvaða ákvörðun forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, tekur og tilkynnir væntanlega á eftir um á blaðamannafundi klukkan 16:15. Ef litið er til þess hvernig menn veðja gera veðmálaglaðir frekar ráð fyrir því að Ólafur Ragnar kvitti undir lög sjávarútvegsráðherra og gefi þannig lítið fyrir það að um gjá sé milli þings og þjóðar - þrátt fyrir nýlega skoðanakönnun sem sýnir 70 prósent landsmanna mótfallna lögum sjávarútvegsráðherra, sem miða að lækkun veiðileyfagjalda og svo undirskriftir í þá átt frá rúmlega 35 þúsund einstaklingum. Þegar þetta er skrifað er stuðullinn fyrir Já 2,50 en Nei 1,45. Þannig að góður meirihluti telur að Ólafur Ragnar Grímsson skrifi undir og láti vera að vísa málinu til þjóðarinnar. Í raun má halda því fram að menn geri þannig síður ráð fyrir því að Ólafur Ragnar verði samkvæmur sjálfum sér. Gunnar Helgi Kristinsson prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands hefur lýst því í samtali við Bylgjuna að miðað við orð forsetans og gjörðir ætti það að benda eindregið til þess að hann muni synja frumvarpinu staðfestingar og vísa þar með í þjóðaratkvæðagreiðslu. Á móti kemur að Ólafur Ragnar Grímsson virðist velviljaður hinni nýju ríkisstjórn og vilji því ekki reynast henni Þrándur í Götu í einu af fyrstu stóru málum hennar. Að sögn Gunnars Helga er forsetinn mjög snjall í að rökstyðja ákvarðanir sínar - eftir á. Umþóttunartími Ólafs Ragnars er ákaflega stuttur því samkvæmt upplýsingum frá Alþingi eru lögin nýlega komin í hendur hans úr prentsmiðju. Þegar hann synjaði lögum um Icesave staðfestingar tók hann sér rúma viku undir feldi. Ósagt verður látið hvort þessi stutti tími gefur vísbendingar um hver ákvörðun forsetans verður en niðurstaðan mun liggja fyrir seinnipart dags, á blaðamannafundi forsetans á Bessastöðum. Vísir verður með beina útsendingu frá fundinum.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Innlent Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur Innlent Fleiri fréttir Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Sjá meira