Árni Páll segir ótrúlegt að forsetinn geri ekki greinarmun á sköttum og gjöldum Lovísa Eiríksdóttir skrifar 9. júlí 2013 18:00 Árni Páll Árnason formaður samfylkingarinnar „
Það er ekki góðs viti að í yfirlýsingunni sé ekki sé meiri skilningur á séreðli afgjalds fyrir afnot af sameiginlegum auðlindum,“ segir Árni Páll Árnason formaður samfylkingarinnar í samtali við Vísi um yfirlýsingu forseta Íslands þar sem forsetinn segist ætla að staðfesta lög um sérstakt veiðigjald. Árni Páll segir að margt í rökfærslu forsetans stingi í augun og þá helst hvernig hann talar um að gjöld séu í raun skattur í hefðbundnum skilningi. Í rökstuðningi forsetans, um að senda lög um sérstakt veiðigjald ekki í þjóðaratkvæði, segir meðal annars að um sé að ræða tímabundnar breytingar á sköttum vegna ríkisins og að ekki sé því vænlegt að vísa málinu í þjóðaratkvæði. „Hér er um að ræða sérleyfi til að nýta sameiginlegar auðlindir þjóðarinnar og afgjald fyrir það er ekki skattur,“ segir Árni Páll sem telur forsetann ganga ansi langt með því að halda því fram að ekki sé til neitt sem heiti auðlindarenta. "Forsetinn er í raun að segja að allt sem lúti að afgjaldi fyrir afnot að sameiginlegum auðlindum sé í raun bara skattur í hefðbundnum skilningi, sem er bara ekki rétt," bætir Árni Páll við. Árni Páll segir alveg ljóst að hann og aðrir í stjórnarandstöðunni muni fylgjast grannt með því með hvaða hætti verði gegnið fram hvað varðar gjaldtökur fyrir sameignilegar auðlindir eftir þann rökstuðning sem forsetinn setti fram. "Miðað við rökin sem að forsetinn færir fram hefur stjórnarmeirihlutinn afar lítið svigrúm til þess að lækka þessi gjöld með varanlegum hætti. Forsetinn leggur sérstaka áherslu á að um sé að ræða tímabundna löggjöf og því þurfum við að fylgjast vel með ef ríkisstjórnin ætlar að endurskoða lögin þannig að menn afsali þjóðinni réttinum til sanngjarns endurgjalds."
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Erlent Fleiri fréttir Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Sjá meira