Brandari að ætla að taka upp Bitcoin Jóhannes Stefánsson skrifar 9. júlí 2013 22:03 Bitcoin er rafrænn gjaldmiðill sem ýmsar netverslanir taka við í viðskiptum. SISSI
Frosti Sigurjónsson, þingmaður Framsóknarflokksins, gefur lítið fyrir hugmyndir um upptöku gjaldmiðilsins Bitcoin og segir hann vondan kost fyrir ýmsar sakir. „Hægt er að nota Bitcoin til að kaupa bjór á einhverjum ölstofum sem vilja laða til sín tölvunerði," segir Frosti á heimasíðu sinni. Sveinn Valfells, fjárfestir, hefur fleygt þeirri hugmynd fram að réttast væri að Ísland myndi taka upp Bitcoin, enda hefðu íslensk stjórnvöld ekki nægilega kunnáttu til að stjórna eigin gjaldmiðli. Því væri rétt að íslenska krónan yrði lögð niður og Bitcoin tekið upp í staðin. Frosti segir að þó að Bitcoin sé gjaldgengur á fáeinum stöðum á netinu sé ekkert vitað um framtíð gjaldmiðilsins né hvort hann verði gjaldgengur víðar þegar fram líða stundir. Þá segir hann gjaldmiðilinn gríðarlega óstöðugan. Frosti spyr sig hvort tal um upptöku Bitcoin sé brandari. „Í ljósi helstu staðreynda um Bitcoin hallast ég helst að því að sú hugmynd að Ísland taki upp Bitcoin í stað krónu sé ágætur brandari eða kannski bara ágæt ádeila. Krónu hafi verið svo illa stýrt í gegnum tíðina að betra væri að taka upp hið skelfilega Bitcoin, lítt gjaldgenga, landlausa og óstöðuga mynt sem háttvirtir senatorar í Bandaríkjunum telja vera píramídasvindl."
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Innlent Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur Innlent Fleiri fréttir Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Sjá meira