Erlent

Forsetakosningar í Venesúela þann 14. apríl

Nicolas Maduro varaforseti Venesúela.
Nicolas Maduro varaforseti Venesúela.
Ákveðið hefur verið að ganga til forsetakosninga í Venesúela þann 14. apríl n.k. Þar mun Nicolas Maduro varaforseti landsins, og arftaki Hugo Chavez, etja kappi við Henrique Capriles leiðtoga stjórnarandstöðunnar um embættið.

Capriles var mótframbjóðandi Chavez í síðustu kosningum og hlaut þá 44% atkvæða. Skoðanakannanir benda til að Maduro muni vinna komandi kosningu með miklum mun og nýtur hann augljóslega vinsælda Chavez.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×