Gæti brotið í bága við persónufrelsi Boði Logason skrifar 12. mars 2013 11:05 Þórður Sveinsson „
Öll rafræn vöktun getur brotið í bága við persónufrelsi" segir Þórður Sveinsson, staðgengill forstjóra Persónuverndar. Á forsíðu Fréttablaðsins í dag segir að fyrirhugað sé að setja upp öryggismyndavélar í alla strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu. Það sé gert vegna þess að ofbeldi beinist að vagnstjórum og farþegum í vaxandi mæli. „Það hefur komið upp að vagnstjórar hafa orðið fyrir árás, allt frá því að kastað er yfir þá hveiti yfir í að þeim sé ógnað með vopni," segir Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs, í samtali við Fréttablaðið. Þórður segir að meta þurfi hvort að það sé málefnalegt að setja upp öryggismyndavélar í almenningssamgöngur hér á landi og nauðsynlegt sé að gæta meðalhófs. Hann bendir á að árið 2005 hafi Persónuvernd í Osló í Noregi ekki fallist á að settar yrðu upp öryggismyndavélar í strætisvagna þar í borg. En úrskurðurinn hafi verið kærður til sérstakrar kærunefndar sem komst að annarri niðurstöðu árið 2006 - það var því leyft að setja upp myndavélarnar. „Ég hef ekki lesið úrskurðinn, en það má gera ráð fyrir því að kærunefndin hafi tekið tillit til almenningshagsmuna og sett einhver skilyrði. Það er mikilvægt að finna jafnvægi í þessu." Persónuvernd hér á landi hefur ekki borist kvörtun vegna málsins en heimild er í lögum stofnunarinnar að taka sjálf upp mál. „Við erum ekkert búin að fjalla um þetta, að minnsta kosti ekki enn sem komið er," segir hann.Athugasemd klukkan 13:00Strætó bs. vill koma því á framfæri að aldrei hafi verið ákveðið né fyrirhugað að setja upp öryggismyndavélar í strætó. Það hefði einungis verið skoðað en ekkert ákveðið í þeim efnum, meðal annars vegna þess að það þyrfti að huga að persónuverndarsjónarmiðum.
Mest lesið Fannst látinn í tjaldi Innlent Lést á Fimmvörðuhálsi Innlent Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Innlent Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti Innlent Björgunarsveitir fara að lambinu: „Vonumst eftir því besta“ Innlent „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Innlent Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið Innlent Velja Viljandi villt Innlent Fleiri fréttir Björgunarsveitir fara að lambinu: „Vonumst eftir því besta“ Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Ósamræmi einkunna: „Við verðum að horfast í augu við það“ Nám í dýralækningum í fyrsta sinn í boði hérlendis Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti „Við erum sáttir“: Gönguhóparnir stóðu fyrir sínu Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Töluvert um sameiningar lífeyrissjóða upp á síðkastið Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Sjá meira
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent