„Vonandi leysist þetta fljótlega" Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 12. mars 2013 16:44 „
Þetta er allt annað en ef ungir íslendingar eru teknir erlendis með fíkniefni í sínum fórum," segir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra Íslands. 28 ára Íslendingur situr í fangelsi í Tyrklandi grunaður um að hafa reynt að smygla fornminjum. Össur var í viðtali í Síðdegisútvarpinu á Rás 2 í dag. Segir ráðherrann að Utanríkisráðuneytið hafi komið að málinu strax á föstudag þegar foreldrar Davíðs Arnar Bjarnasonar höfðu samband við ráðuneytið. „Við höfum þaulskipulagt kerfi við þessar aðstæður," segir Össur. Ísland hefur sem kunnugt er ekkert sendiráð í Tyrklandi en ræðismaður Íslands í Ankara hefur lögsögu yfir Antalya þaðan sem Davíð ætlaði að fljúga til Svíþjóðar ásamt konu sinni á föstudag. „Okkar ræðismaður er með stóra lögfræðistofu og gat strax sett viðskiptafélaga sinn í Antalya inn í málið," segir Össur. Hann segir allt annað að eiga við mál þar sem flest bendi til að um mistök hafi verið að ræða og brotavilji ekki fyrir hendi. „Í þessu tilviki telja menn að hann hafi einhvers konar fornminjar í fórum sér. Marmarastein sem hann keypti fyrir 30 evrur. Það ætti að vera hægt að sannreyna með afgerandi hætti," segir Össur og greinilegt að hann telur að um mistök hafi verið að ræða. Hann segir Íslendinga eiga í góðum samskiptum við Tyrki sem er umsóknarland að Evrópusambandinu líkt og Ísland. Því hafi þjóðirnar verið í töluverðum samskiptum undanfarið. „Vonandi leysist þetta fljótlega þó svo auðvitað sé ekki hægt að lofa því," segir Össur. Hann segir Íslendinga eiga góða kunningja í tyrkneska þinginu en auk þess hafi Íslendingar góð tengsl við menn sem hafa ítök þótt þeir séu horfnir af pólitíska sviðinu. Hægt verði að leita til þeirra þurfi þess. „Í þessu tilviki bíðum við og sjáum hvort þetta gangi ekki," segir Össur.Höfum sent mannskap yfir hálfan hnöttinn Össur segir skyldu utanríkisráðuneytisins að sjá til þess að Íslendingar sem lendi í fangelsum erlendis fái lögfræðiaðstoð. Það hafi tekist saman dag og málið kom upp. Hins vegar ef málaflutningur dregst og verður kostnaðarsamur geti ráðuneytið ekki staðið straum af kostnaðinum. Össur segir þó fjölskyldu Davíðs Arnar tilbúna að aðstoða komi það upp. Stofnaður hefur verið styrktarreikningur vegna málsins í nafni Óskars og Stefáns, vina þeirra:Kennitala: 1012813969 ; Banki: 0322-13-129886 Össur segir allt gert til þess að tryggja mannúðlega meðferð Davíðs Arnar í fangelsinu. „Við gerum okkar besta til þess að tryggja það. Mörgum sinnum hefur okkur tekist að fá bætta aðstöðu fanga í fangelsum eða fengið þá flutta yfir í betri fangelsi," segir Össur. Hann bendir á að Tyrkir hafi tekið mannréttindamál sín til endurskoðunar undanfarin ár enda þurfi þjóðin að uppfylla ýmis skilyrði á þeim vettvangi vegna aðildarumsóknar sinnar í ESB. Össur segir utanríkisráðuneyti Íslands mun betur í stakk búið til þess að hjálpa Davíð Erni en til dæmis í málum sem upp hafa komið í Suður-Ameríku. Þar hafa Íslendingar verið teknir með fíkniefnum í fórum sínum og sætt langri fangelsisvist. „Í Suður-Ameríku eru fangelsin full af ungu evrópsku fólk sem hefur reynt að fara yfri landamæti með fíkniefni. Þeir hafa lítið umburðarlyndi fyrir svoleiðis hlutum," segir Össur sem komið hefur í fangelsi á slíkum slóðum. Þar heimsótti hann íslenska fanga og segir þá sýn ekki hafa verið fagra.
Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira