Hlýnar og slær á skafrenning í kvöld 6. mars 2013 21:10 Mynd/Vilhelm
Vonskuveður er á Suðurlandi og víðast hvar ekki ferðaveður. Á láglendi suðvestanlands hlýnar upp undir frostmark í kvöld og slær verulega á skafrenning. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Austan Reykjavíkur á Mosfellsheiði og eins Hellisheiði og í Þrengslum verður austanstormur, skafrenningur og lítið skyggni allt til morguns. Hviður verða á Kjalarnesi 30-40 m/s fram yfir miðnætti. Undir Eyjafjöllum verður hríð, lítið skyggni og stormur með hviðum meira og minna til morguns og snarpar hviður einnig í Öræfasveit. Á Vesturlandi og Vestfjörðum lagast markvert í kvöld, rofar til en áfram hvasst og skafrenningur. Norðan- og austanlands fer einnig hægt skánandi, einkum í nótt samfara heldur minnandi veðurhæð þar.Færð og aðstæður Vonskuveður er á Suðurlandi og víðast hvar ekki ferðaveður. Þæfingsfærð og stórhríð er á Reynisfjall. Það eru hálkublettir og skafrenningur á Hellisheiði, í Þrengslum og á Sandskeiði. Búið er að opna veginn um Kjalanes en þar eru hálkublettir og óveður. Á höfuðborgarsvæðinu er víðast hvar mjög blint og hálka. Hálka og skafrenningur er á Reykjanesbraut og á Suðurnesjum þó er en flughálka frá Keflavík út í Sandgerði og Garð. Vonskuveður er víða á Vesturlandi. Stórhríð er víða á Snæfellsnesi. Fróðárheiði er ófær. Þungfært er milli Búða og Hellna en ófært frá Hellissandi að Grundarfirði. Þungfært er einnig á Svínadal og stórhríð á Skarðsströnd. Á Vestfjörðum er ekkert ferðaveður, fjallvegir eru flestir ófærir og einnig er víða slæm færð í byggð. Mjög slæmt veður er einnig á Norðurlandi. Stórhríð í Húnavatnssýslum og á Þverárfjalli og eins á Tröllaskaga. Ófært er á Siglufjarðarvegi og á Öxnadalsheið einig til Grenivíkur og á Víkurskarði. Búið er að opna vegin í Héðinsfirði einnig vegin á milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur en þar er snjóþekja og éljagangur. Þæfingsfærð og stórhríð er í Ljósavatnsskarði en snjóþekja og stórhríð á Tjörnesi og óveður áfram þaðan austur á Raufarhöfn. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Hófaskarði. Það er ófært á Möðrudalsöræfum, Fjarðarheiði, Vopnafjarðarheiði og Vatnsskarði eystra. Stórhríð er á Jökuldal og þæfingur. Þungfært og skafrenningur er á Oddsskarði. Versnandi veður er með austurströndinni. Óveður er í Öræfum og alls ekki ferðaveður, grjótfok og mikið um rúðubrot á bílum sem þar hafa verið á ferð.
Mest lesið „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Erlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Fleiri fréttir Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Sjá meira