"Mér finnst þetta svolítið ósanngjarnt“ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 6. mars 2013 23:03 Fjölmargir lentu í vandræðum á höfuðborgarsvæðinu í dag. Mynd/Vilhelm „
Maður er allur boðinn og búinn til að hjálpa," segir Guðjón Þorbjörnsson sem keyrði fram hjá fjölda bifreiða á höfuðborgarsvæðinu í dag sem hefðu vafalítið vel þegið hans aðstoð. Guðjón var einn fjölmargra sem lenti í biðröð við Lækinn í Kópavogi í dag en óveður gerði ökumönnum á höfuðborgarsvæðinu erfitt fyrir í dag. Guðjón, sem keyrir um á stórum og stæðilegum 250 Powerstroke pallbíl, segist vel hafa getað hjálpað fjölmörgum sem í vanda voru staddir en taki ekki áhættuna. „Það er mjög algengt að menn sem eru á svona tækjum og geta hjálpað keyri bara fram hjá. Ef menn draga bíl í gegnum skafl og við það brotnar svunta þá er bótaskyldan þeirra," segir Guðjón. Guðjón lenti í þeirri leiðinlegu lífsreynslu um árið að reyna að hjálpa ökumanni sem var fastur í skafli. Var kaðall strengdur á milli og gerð tilraun til þess að losa bílinn úr skaflinum. „Þá slitnaði kaðallinn, lenti á húddinu og skemmdi það. Ég var bótaskyldur," segir Guðjón. Eigandi hins bílsins hafi einfaldlega gefið upp bílnúmer sitt. Tryggingar Guðjóns borguðu brúsann. „Ég hugsa að það séu fleiri en ég sem vita af þessu. Menn á alvöru bílum sem geta hjálpað," segir Guðjón. Ekki sé þægilegt heldur að keyra fram hjá fólki í vanda sem virðist hugsa sér þegjandi þörfina. „Ég hefði getað hjálpað fullt af bílum í dag. En svo fær maður illt augnaráð," segir Guðjón og hlær. Hann telur að væru tryggingarlögin á annan veg fengust fleiri til þess að aðstoða samborgara sína.
Mest lesið Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Erlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Fleiri fréttir Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Sjá meira