Erlent

Forsetaframbjóðandi fórst í þyrluslysi í Paragvæ

Lino Oviedo einn af frambjóðendunum í forsetakosningunum í Paragvæ fórst í þyrluslysi í gærdag ásamt flugmanni þyrlunnar og lífverði sínum.

Lino var á leið af kosningafundi til höfuðborgarinnar Asuncion þegar þyrlan hrapaði. Ekki er vitað um orsakir þessa að þyrlan hrapaði en stjórnvöl í Paragvæ útiloka ekki að um skemmdarverk hafi verið að ræða.

Lino var frambjóðandi Íhaldsflokksins í kosningunum en skoðanakannanir mældu hann með aðeins 8% fylgi áður en hann fórst.

Lino var dæmdur í tíu ára fangelsi á tíunda áratug síðustu aldar en þá gerði hann tilraun til valdráns í Paragvæ. Hann var æðsti yfirmaður hersins á valdatíma Alfredo Stroessner einræðisherra á síðustu öld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×