Innlent

Fyrrum dómari í Gettu Betur segir kynjakvóta tímabæran

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Af 24 keppendum Gettu Betur í ár er aðeins ein stúlka.
Af 24 keppendum Gettu Betur í ár er aðeins ein stúlka. Samsett mynd
„23 strákar og ein stelpa er bara vont sjónvarp, nema þátturinn sé Bachelorette," segir sagnfræðingurinn Stefán Pálsson, og að hans mati er tímabært að innleiða kynjakvóta í Gettu Betur, spurningakeppni framhaldsskólanna.

Átta skólar eru komnir áfram úr útvarpskeppninni, en fyrsti þáttur næstu umferðar verður á dagskrá Sjónvarpsins í byrjun febrúar. Af 24 keppendum þeirra átta liða sem komust áfram í sjónvarpskeppnina er aðeins einn kvenkyns keppanda að finna.

„Það eru ýmsar reglur í keppninni og ekkert því til fyrirstöðu að taka upp þá reglu að hvert lið skuli innihalda keppendur af báðum kynjum," segir Stefán, sem sjálfur var í sigurliði MR árið 1995 og hefur einnig gegnt stöðu dómara í keppninni.

Stefán segir þetta þó þurfa að gerast með góðum fyrirvara, en áður hefur verið reynt að rétta hlut kvenna í keppninni.

„Fyrir um tuttugu árum síðan gerði Sjónvarpið þessa tilraun, og þá var send tilkynning um kynjakvóta með skráningarbréfinu þegar vel var liðið á haust, en þá voru auðvitað metnaðarfyllstu skólarnir löngu búnir að velja í lið og þessu var ekkert fylgt eftir."

Þá gagnrýnir Stefán Menntaskólann í Reykjavík fyrir að hafa aðeins sent eina stelpu í keppnina í 28 ára sögu hennar. „Það er hrikalega lélegt og ég hálfpartinn skammast mín fyrir hönd míns gamla skóla, en mér sýnist hann ekki fær um að kippa þessu í liðinn nema honum sé skipað að gera það."

Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrárstjóri Sjónvarpsins, tekur í sama streng en vonast til að hægt sé að finna úrbætur sem fela ekki í sér kynjakvóta.

„Það er bagalegt hvað eru fáar stúlkur í þessum liðum sem komust upp úr útvarpskeppninni, og það er full ástæða til þess að reyna að komast að því hvers vegna fleiri stúlkur eru ekki almennt í liðunum sem taka þátt."

Skarphéðinn bætir því við að fáum þyki vænna um keppnina en Stefáni Pálssyni og því beri að taka tillögur hans til athugunar. „Það er full ástæða til að setjast niður með mönnum eins og honum, og fleirum, og reyna að rétta þennan hlut af. Og helst án þess að þurfa að beita þvingunum og setja einhverjar reglur."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×