„Dapurlegt raus hjá ASÍ“ Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 6. mars 2013 17:48 „
Þetta er óttalega dapurt raus hjá ASÍ og ég vísa þessu auðvitað til föðurhúsanna." Þetta segir Gunnar Ingi Sigurðsson, framkvæmdastjóri Hagkaupa um hugmyndir ASÍ að þær verslanir sem ekki taka þátt í verðlagskönnun sambandsins séu að leit skjóls til verðhækkana. Starfsmönnum Verðlagseftirlits ASÍ var vísað á dyr í fjórum verslunum í gær, líkt og gerðist í síðasta mánuði. „Þær verslanir sem vilja takmarka aðgengi neytenda að upplýsingum um vöruverð hjá sér eru Hagkaup, Nóatún, Víðir og Kostur," segir í tilkynningu ASÍ. „Verslanirnar virðast ekki tilbúnar til að sýna launafólki samstöðu með því að halda vöruverði niðri og þar með verðbólgunni í skefjum, öllum til heilla." Gunnar Ingi vísar þessu á bug. „Það er skrýtið að menn haldi því fram að þetta sé eitthvað leynimakk. Staðreyndin er sú að framkvæmd þessa kannana hefur verið ábótavant hingað til og því er maður nauðbeygður til að taka sig út úr þessu." Þá gefur hann lítið fyrir fullyrðingar ASÍ um að Hagkaup hafi ekki sýnt launafólki samstöðu með því að vísa starfsmönnum Verðlagseftirlitsins á dyr. „Það er lítið mál að slá sig til riddara og koma með yfirlýsingar." „Staðreyndin er sú að við eru með um 800 manns í vinnu hjá okkur," segir Gunnar Ingi. „Og það er miður að ASÍ skuli reyna að sverta fyrirtæki sem eru með þeirra eigin félagsmenn í vinnu." Hann bendir á að kannanir ASÍ hafi ekki verið gerðar á réttum forsendum. „Epli eru ekki bara epli," segir Gunnar Ingi. „Þarna eru þriðja flokks vörur bornar saman við lúxusvörur og sagt vera sami hluturinn. Með þessu er verið að blekkja neytendur." „Við erum reiðubúnir að taka þátt í könnunum en ekki á þessum forsendum og það á við um alla," segir Gunnar Ingi að lokum.
Mest lesið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Erlent Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Fleiri fréttir Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Sjá meira