Fjórum sinnum á hausinn á leiðinni í vinnuna Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 6. mars 2013 21:39 „
Þetta var allt mjúkt nema þriðja byltan," segir hjólreiðakappinn Þorfinnur Pétur Eggertsson sem flaug fjórum sinnum á hausinn á leið sinni á hjólinu í vinnuna í morgun. Þorfinnur Pétur segir ekki annað hafa komið til greina en að hjóla í dag. „Mustang-inn fer ekkert í svona veðri," segir Þorfinnur léttur sem alla jafnar hjólar í vinnuna frá heimili sínu í Grafarvogi og í Borgartúnið þar sem hann starfar. Þorfinnur lagði af stað úr Grafarvoginum rétt fyrir klukkan átta í morgun. Ferðalagið niður í Borgartún tók 45 mínútur en fjórum sinnum lá hann í snjónum enda aðstæður ekki þær bestu. Hann er þó ósáttur við frágang Reykjavíkurborgar á stígnum milli Sæbrautar og Langholtsvegs. „Það er helvítis borgin. Ég er ennþá fúll út í hana. Þeir eru ekki búnir að ganga frá stígnum þarna. Þeir eru bara búnir að grófjafna hliðina á honum. Þannig að það er fimm sentimetra brík við endann á malbikinu. Svo skafa dráttarvélarnar þetta einhvernveginn. Ég hélt ég væri á miðjum stígnum þegar ég fór fram af bríkinni. Þá flaug ég bara á hausinn. Þess vegna rúllaði ég svo skemmtilega þar," segir Þorfinnur sem kenndi sér þó ekki meins. Því síður kvartar hann yfir veðrinu. „Þetta var bara smá gola. Það var ekkert að veðrinu þannig. Það bara skefur svo í förin. Það er aðalvandamálið," segir Þorfinnur sem er vel útbúinn og á nagladekkjum. Hann hjólaði að sjálfsögðu líka heim að loknum vinnudegi en það tók aðeins lengri tíma eða klukkustund. Heimferðin gekk þó áfallalaust fyrir sig. „Það var náttúrulega rok á móti á leiðinni heim," segir Þorfinnur ætlar að hjóla í vinnuna á morgun eins og venjulega. Ökumenn stöðva bíla á gangbrautunumAlla jafna hjólar Þorfinnur á götunum en ákvað að nýta sér stígana í dag vegna veðursins og umferðarinnar. „Maður fer þennan stíg svo sjaldan. Mér sýndist hann vera mokaður þannig að ég fór hann alla leiðina. En svo var búið að skafa í allt aftur þannig að þetta var drulluerfitt," segir Þorfinnur sem finnur ýmislegt að frágangi borgarinnar við reiðhjólastígana. Nefnir hann ýmis minni atriði við Laugaveg og Suðurlandsbrautina. „Það sem ég er mest ósáttur við er að það séu ekki betri merkingar við gatnamót þar sem hjólabrautin þverar t.d. Álfheimana og Langholtsveginn hins vegar. Þar er bara hraðahindrun og samkvæmt því eigum við að stoppa hjólin og teyma þau yfir. Þetta er ekki það sem maður hafði í huga þegar hjólabrautin var gerð. Þá hélt maður að hjólin myndu hafa forgang á bílana. Þetta á að koma í staðinn fyrir að maður hjóli Suðurlandsbrautina," segir Þorfinnur. Þá segir hann algengt að ökumenn stöðvi bíla sína á gangbrautum sem tilheyri hjólastígum hjólreiðaköppum til mikils ama. „Hitt sem við erum að væla yfir er þegar fólk stoppar við gangstéttina við Álfheimana þá stoppa menn uppi á hraðahindruninni. Þannig að ef einhver kemur á hjóli er hann bara stopp.," segir Þorfinnur og bendir á meðfylgjandi myndband sem hann tók á dögunum máli sínu til stuðnings.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Segja engan fund á dagskrá Erlent Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Fleiri fréttir Metfjöldi í Hlíðarfjalli á stórafmæli Andrésar Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Sjá meira