Sakar Guðlaug Þór um að ljúga upp á gesti Alþingis 13. mars 2013 10:54 Björn Valur Gíslason. „
Er engin leið til þess að verja gesti Alþingis fyrir haugalygi þingmanna," spurði Björn Valur Gíslason, þingmaður Vinstri grænna, þar sem hann gagnrýndi Guðlaug Þór Þórðarson, þingmann Sjálfstæðisflokksins harkalega á Alþingi í dag undir liðnum störf þingsins. Björn Valur gerði að umtalsefni fréttir vefmiðla, svo sem Eyjunnar, sem birtust í gær en þar var haft eftir Guðlaugi Þór, um að fram hefði komið í máli sérfræðinga á fundi efnahags- og viðskiptanefndar í vikunni, að skattsvik og skattaundanskot hefðu stóraukist á liðnum árum og að þeirra tilfinning væri sú, að skattarnir væru orðnir svo háir að það væri orðið réttlætanlegt að borga þá ekki. „Mér fannst þetta athyglisvert og setti mig í samband við nefndarmenn en enginn kannaðist við ummælin," sagði Björn Valur í morgun og bætti við að hann hefði því næst sett sig í samband við gesti nefndarinnar. „Og þar kannaðist heldur enginn við ummælin," sagði Björn Valur og benti jafnframt á að gestir nefndarinnar hefðu verið fulltrúar ASÍ, Samtaka atvinnulífsins, fjármálaráðuneytisins og ríkisskattstjóra. „Það væri nú fréttnæmt ef ríkisskattstjóri liti svo á að það væri í lagi að greiða ekki skatta," sagði Björn Valur og spurði svo hvort það væri ekki hægt að verja gesti þingsins fyrir meintri lygi þingmanna. Illugi Gunnarsson, flokksbróðir Guðlaugs Þórs kom svo upp í púlt og sagði að Guðlaugur Þór hefði benti á að skattsvik hefðu stóraukist og að skattakerfið hér á landi væri orðið of flókið. Um það væri ekki deilt að hans mati.Hér má svo nálgast ræðu Guðlaugs Þórs á Alþingi.
Mest lesið Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Erlent Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Erlent Hættir að fjármagna þróun mRNA bóluefna Erlent Hvar á að grípa niður í fækkun innflytjenda? Innlent Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Innlent Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Erlent Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Innlent Tveir skjálftar yfir þrír að stærð Innlent Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Innlent Sektaður vegna kýr sem drapst á leið í sláturhús Innlent Fleiri fréttir Sektaður vegna kýr sem drapst á leið í sláturhús Minnsti þéttleiki makríls síðan 2010 Tveir skjálftar yfir þrír að stærð Hvar á að grípa niður í fækkun innflytjenda? Blóðbankinn á leið í Kringluna Nokkuð um hávaðaútköll Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Til skoðunar að hafa mannskap við vöktun í Reynisfjöru Herða öryggisreglur eftir slysið: „Þetta hafa verið mjög erfiðir dagar“ Flugeldum kastað að fólki á Akureyri Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Ráðstafanir í Reynisfjöru, tollar og lax á sjaldséðum slóðum Boðar fund um tolla Trumps og ESB Rauða ljósið mun blikka fyrr Enn má búast við gosmóðu þó eldgosinu sé lokið í bili Flutti lítra af kókaínvökva til landsins gegn greiðslu „Samstaða skapar samfélag“ er þema Hinsegin daga Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Tollar Trumps muni hafa tilætluð áhrif Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Allt bendir til þess að eldgosinu sé lokið Vörubifreið ekið á vegfarandann Útlendingamálin, Reynisfjara og Hinsegin dagar Ferðamenn gangi á eigin ábyrgð til leiks við náttúru Íslands Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Mjög lítil virkni en mallar enn Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Sjá meira