Segir skilning Björns Vals vitlausan - mátti hugsanlega orða hlutina skýrar 13. mars 2013 16:09 Guðlaugur Þór Þórðarson „
Ég hafði nú ekki hugmyndaflug í að þetta yrði túlkað með þessum hætti," segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, um ásakanir Björns Vals Gíslasonar, þingmanns Vinstri grænna, sem sakaði Guðlaug um haugalygi þegar Guðlaugur lýsti fundi sínum með efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis. Guðlaugur hélt ræðu í gær um efni fundarins þar sem hann sagði gesti nefndarinnar, sem voru fulltrúar frá ASÍ, ríkisskattstjóra, SA og fjármálaráðuneytisins, hefðu meðal annars rætt um að það að skattar væru orðnir svo háir að það væri orðið réttlætanlegt að borga þá ekki. Setningin í ræðu Guðlaugs Þórs sem um er deilt er nákvæmlega þessi: „Við fórum yfir skattamál og þar voru allir helstu sérfræðingar landsins í skattamálum sem upplýstu okkur um að skattsvik og skattundanskot hafi stóraukist, upplýstu okkur um að tilfinning þeirra væri sú að skattar væru orðnir það háir að réttlætanlegt væri orðið að borga þá ekki." Aðspurður segir Guðlaugur að það hafi vissulega vantað orðið „fólk" eða „almenningur" þarna einhverstaðar, hugsanlega hefði mátt orða setninguna skýrar, en Guðlaugur segir það á hreinu að það hafi ekki verið afstaða gesta nefndarinnar að það væri réttlætanlegt að greiða ekki skatta hér á landi. Þessu til stuðnings bendir Guðlaugur á svar ríkisskattstjóra til Björns Vals í gær en þar segir meðal annars: „Í okkar máli kom fram að skatthlutföll hefðu hækkað og því væri freisting til undanskota meiri en áður og slíkt væri að jafnaði skýring gjaldenda þegar komist hefði upp um undanskot. Við vorum að sjálfsögðu ekki að réttlæta það heldur greindum frá þeim sjónarmiðum sem heyrðust frá gjaldendum og víðar í samfélaginu hvað þetta varðar. Ríkisskattstjóri tekur að sjálfsögðu ekki undir afstöðu gjaldenda hvað þetta varðar." Guðlaugur undirstrikar svo að næsta ræða á eftir honum, sem Sigfús Karlsson varaþingmaður Framsóknarflokksins hélt, hafi sá skilningur komið fram að það væru ekki nefndarmenn sem héldu þessu fram, heldur væri þetta afstaða allt of margra í samfélaginu sem kysu að svindla undan skatti. Orðrétt sagði Sigfús um þetta: „og ég held að þeir sérfræðingar sem voru á nefndarfundi hjá okkur áðan hafi rétt fyrir sér um það — að menn telja að skattar séu orðnir það háir í landinu að fólki finnist það réttlætanlegt að stinga undan skatti. Þetta er bara hræðileg staðreynd." Einnig kom fram í svari ríkisskattstjóra að beinn tekjuauki ríkissjóðs vegna skatteftirlits á árunum 2011 og 2012, voru 13,4 milljarðar.
Mest lesið Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Erlent TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Erlent „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Innlent Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum Innlent Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Erlent Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Innlent Rannsaka líkamsárás í miðsvæðis Innlent Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Innlent Blaut og vindasöm Menningarnótt í vændum Veður Fleiri fréttir Rannsaka líkamsárás í miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ „Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð“ Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Uppselt í tíu kílómetra í keppnisflokki Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Örn verður framkvæmdastjóri HÍ Hefja útboðsferli fyrir þrjú þúsund fermetra höfuðstöðvar Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Aðstoðuðu við að ná svifvæng úr tré við Hafravatn Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðanna Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Sjá meira
Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Erlent
Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Erlent