Tarantino og stjörnurnar í Django studdu Guðmund 18. janúar 2013 06:00 Guðmundur Felix Grétarsson með klapptréð sem stjörnurnar í Django Unchained árituðu. Frænka hans Heba Þórisdóttir fékk Tarantino og félaga til að árita það. "
Það er ekkert slor að fá þetta frá svona stjörnum. Stuðningurinn er farinn að teygja sig út fyrir landssteinana,“ segir Guðmundur Felix Grétarsson. Hann fékk að gjöf svokallað klapptré með áritun frá stjörnunum sem tóku þátt í gerð kvikmyndarinnar Django Unchained, þar á meðal leikstjóranum Quentin Tarantino, Leonardo DiCaprio, Jamie Foxx, Christoph Waltz og Samuel L. Jackson. Klapptréð hefur verið sett á uppboðssíðuna eBay og ágóðann ætlar Guðmundur Felix að nota í tengslum við fyrirhugaða handaágræðslu sína í frönsku borginni Lyon, sem verður sú fyrsta sinnar tegundar. Hann missti báðar hendur í vinnuslysi fyrir fimmtán árum. Föðursystir Guðmundar, Heba Þórisdóttir, var yfirmaður förðunardeildar Django Unchained og það var hún sem stóð fyrir uppátækinu. "Hún hefur verið að vinna með Quentin Tarantino. Hún skrifaði bréf þar sem hún kynnti þetta mál fyrir þeim. Það tóku allir rosalega vel í þetta og vildu endilega styðja mig,“ segir Guðmundur, sem er að sjálfsögðu afar þakklátur. Hann er þegar búinn að safna um fjörutíu milljónum heima á Íslandi vegna handaágræðslunnar. Sá peningur dugar fyrir aðgerðinni og hluta endurhæfingarinnar en peningurinn sem safnast fyrir klapptréð verður alfarið notaður í endurhæfinguna. Upphafsboð er um 250 þúsund krónur. "Upprunalega markmiðinu var náð í söfnuninni en þetta er bara viðbót. Við vitum ekkert hvað þetta kemur til með að kosta og hvað ég þarf að bíða lengi úti. Hugmyndin er að vera í endurhæfingu eins lengi og fé dugir til. Þessi peningur lengir þann tíma sem ég get fengið góða endurhæfingu erlendis.“ Guðmundur ætlar að leita sér að húsnæði í Frakklandi í febrúar. Hann býst við að verða settur á biðlista eftir nýjum höndum í mars og þá geta hlutirnir gerst fljótt. "Síðasti maður á biðlista beið í mánuð og þá var hann kominn í aðgerð. Þetta gæti verið komið fyrir sumarið,“ segir hann og vonar það besta. Aðspurður kveðst hann vera búinn að sjá hina Óskarstilnefndu Django Unchained, sem verður frumsýnd hérlendis á morgun, og skemmti hann sér konunglega. "Sena bauð mér á myndina og þetta er einhver besta mynd sem ég hef séð, algjör snilld.“ Heba og HollywoodHeba Þórisdóttir.Heba Þórisdóttir hefur gefið sér gott orð í Hollwyood fyrir förðun sína. Hún hefur verið sérlegur förðunarráðgjafi Scarlett Johannsson í mörgum kvikmyndum, þar á meðal The Avengers og We Bought A Zoo. Einnig hefur hún farðað Kate Blanchett í nokkrum myndum, þar á meðal The Curious Case of Benjamin Button og Hannah. Að auki hefur hún verið yfirmaður förðunardeildar við tökur á síðustu myndum Quentins Tarantino, eða Django Unchained, Inglorious Basterds og Kill Bill-tvíleiknum.
Mest lesið Búlgaría fór fram úr Ísrael á síðustu stundu og sigraði Eurovision Lífið Alma himinlifandi með soninn sem lofar 45 prósenta fylgi næst Lífið Krakkatía vikunnar: Bragðlaukar, kosningar og gulrófur Lífið Setur ávallt á sig varalit á kjördag en verður ekki með hann í kvöld Lífið Sigurræða Ásdísar: Ætlaði allt að koll um keyra þegar Ásdís mætti Lífið Fréttatía vikunnar: Jake Paul, Rúmeni og Bakgarðshlaup Lífið Stjörnuleikarar sendu yfirlýstum aðdáanda kveðju Lífið „Þetta var erfiðasta ár lífs míns“ Tónlist Ljóðelskir frambjóðendur sýna hvað í þeim býr Lífið Oddvitaáskorunin: Sneri heim vegna fjölskyldunnar Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Bragðlaukar, kosningar og gulrófur Setur ávallt á sig varalit á kjördag en verður ekki með hann í kvöld Alma himinlifandi með soninn sem lofar 45 prósenta fylgi næst Sigurræða Ásdísar: Ætlaði allt að koll um keyra þegar Ásdís mætti Búlgaría fór fram úr Ísrael á síðustu stundu og sigraði Eurovision Stjörnuleikarar sendu yfirlýstum aðdáanda kveðju Ljóðelskir frambjóðendur sýna hvað í þeim býr Fréttatía vikunnar: Jake Paul, Rúmeni og Bakgarðshlaup Oddvitaáskorunin: Ætlaði sér að verða næsti Beckham Oddvitaáskorunin: Sneri heim vegna fjölskyldunnar Oddvitaáskorunin: Dreymdi um að verða veðurfræðingur Oddvitaáskorunin: Gildran betri en Kaleo Konan sem skaut Spider Sabich til bana er látin Oddvitaáskorunin: Neitar að nota gervigreind Oddvitaáskorunin: Ennþá svekkt með úrslit Eurovision 2010 Búið spil fimm mánuðum eftir fæðingu dótturinnar Oddvitaáskorunin: Liverpool ekki vinsælasta liðið innan flokksins Oddvitaáskorunin: „Alveg óþolandi hvað ég kann illa á klukku“ Oddvitaáskorunin: Hljóp í spreng Sveinn Andri og Vigdís keyptu ótrúlega íbúð á besta stað Oddvitaáskorunin: Grét yfir bókinni í misheppnaðri útilegu Oddvitaáskorunin: Ætlaði til Akureyrar en sneri óvart við í Borgarnesi Geltandi Britney sögð hafa ógnað gestum veitingastaðar Oddvitaáskorunin: Ron Burgundy sá fyndnasti Oddvitaáskorunin: „Jólasveinn í Jólafsfirði“ Oddvitaáskorunin: „Baunateljarinn“ Framboð án eftirspurnar: Óvinsælustu örframboðin í sögu borgarinnar Oddvitaáskorunin: Streymdi hrotunum beint á Facebook Þessi lönd komust áfram á seinna undanúrslitakvöldi Eurovision Oddvitaáskorunin: Vopnið á Skaganum Sjá meira