Lífið

Landaði 2. sæti á Arnold Classic

Ellý Ármanns skrifar
Myndir/Betriarangur.is
Rebekka Ósk Heiðarsdóttir 22 ára viðskiptafræðinemi var ein af sex Íslendingum sem komust á verðlaunapall á Arnold Classic Europe fitnessmótinu sem fram fór á Spáni síðustu helgi -  hér má sjá úrslitin.

Rebekka er í viðskiptafræði í Háskóla Íslands.
Rebekka, sem varð í 2. sæti í flokknum  Junior Women Bodyfitness, æfði fimleika í mörg ár áður en hún lét drauminn loksins rætast um að taka þátt í fitnessmóti.

Dauðlangaði að keppa

„Ég æfði fimleika hjá Fylki í 15 ár. Eftir að ég hætti þá dauðlangaði mig að keppa í fitness en ég hélt að ég myndi aldrei þora því en svo ákvað ég að skrá mig hjá Betri árangri vorið 2012 og þær sögðu strax að ég ætti að keppa," svarar Rebekka spurð hvernig það kom til að hún tók þátt.

Rebekka í öllu sínu veldi.
Fljótt að gerast

Hvernig tilfinning var að landa 2. sætinu? „Þetta var svo fljótt að gerast að ég fattaði eiginlega ekki fyrr en eftir á að ég lenti í öðru sæti. En það var ekki leiðinlegt að standa við hliðina á heimsmeistaranum í junior flokki þegar það átti bara eftir að tilkynna tvö efstu sætin," segir Rebekka ánægð með árangurinn.

Betri árangur gaf okkur leyfi til að birta myndirnar af Íslendingunum sem tóku þátt í mótinu.

Smelltu á efstu mynd í frétt til að skoða allar myndirnar.



Úrslitin:

Rebekka Ósk Heiðarsdóttir   Junior Women Bodyfitness – 2 sæti

Auður Jóna Guðmundsdóttir   Bikini over 172 – 6 sæti

Gyða Dröfn Sveinbjörnsdóttir   Bikini up to 160 – ekki úrslit

Karen Lind Richardsdóttir   Bikini up to 169 – 2 sæti

Katrín Ösp Jónasdóttir   Bikini up to 169 – 3 sæti

Kristín Guðlaugsdóttir   Bikini up to 163 – ekki úrslit

Margrét Lára Rögnvaldsdóttir   Bikini up to 169 – ekki úrslit

Maria Kristin Gudjonsdottir   Bikini up to 166 – 5 sæti

Magnús Bess Júlíusson   MASTERS MEN 40-49 YEARS , OVER 90KG – ekki úrslit

Olga Helena Ólafsdottir   Bikini up to 166 – ekki úrslit

Andrea Rán Jóhannsdóttir   Junior Women Bodyfitness – 4 sæti

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.