Forðið höfuðborgarsvæðinu frá frekari húsbyggingum undir fölsku flaggi! Arna Mathiesen skrifar 13. júlí 2012 06:00 By building sustainable towns and cities, you will build global sustainability," sagði aðalritari Sameinuðu þjóðanna í lok Ríóráðstefnunnar á dögunum. Þetta eru bara draumar svo lengi sem ríkisvaldið þrýstir allri ábyrgð á sjálfbærni niður á borgirnar sem vilja bara vaxa í samkeppni hver við aðra og ýta vandræðum sem af því hlýst niður á þegnana. Þess ber höfuðborgarsvæði Íslands glöggt vitni. Fólksfjölgun, fólksfjölgun! segja skipuleggjendur borgarinnar og kynna nýjar skipulagsáætlanir fyrir meiri íbúðabyggð á höfuðborgarsvæðinu. Þótt fjölgun íbúða í borginni hafi aukist miklu meir en íbúafjöldinn fyrir hrun og þótt ofgnótt sé líka af annars konar húsnæði sem er vannýtt og hægt væri að breyta í íbúðarhúsnæði. Rannsóknir sýna að fjölmargar borgir eru heldur að skreppa saman (www.shrinkingcities.com) en vaxa, þótt þær vilji ekki viðurkenna það. En hver gæti verið hinn raunverulegi hvati að vexti höfuðborgarinnar? Nú hefur svo verið búið í haginn af hálfu ríkisins að skuldir sveitarfélaga megi ekki vera umfram 150% af heildartekjum og eigi því markmiði að vera náð innan tíu ára. Skuldirnar eru svo miklar að sveitarfélögin verða að skaffa sér miklu meiri tekjur eigi þau að geta boðið upp á lögboðna þjónustu. Er þá nokkuð augljósara til fljótlegrar fjáröflunar en það að stuðla að húsbyggingum til að draga að sér fleiri íbúa og þannig geta innheimt meiri gjöld og skatta til að geta borgað niður skuldirnar? Ef þetta er hvatinn hefur ríkið lagt drögin að „spennandi" kapphlaupi sveitarfélaga um íbúa og fermetrafjölda til að innheimta útsvar af fleiri íbúum og gjöld af fleiri fermetrum og lóðum. Ef dæma má af áætlunum tveggja stærstu sveitarfélaganna eru drögin fyrir frekari byggingar ólík eftir svæðum innan höfuðborgarsvæðisins: Þétting byggðar í miðbæ Reykjavíkur og áframhaldandi byggð út um holt og hæðir í Kópavogi. Hvað skyldi þá seljast betur, „sjálfbær" íbúð í miðborg Reykjavíkur þar sem hægt er að hjóla eða ganga í vinnuna eða einbýlishúsalóð í úthverfunum með 50% afslætti og útsýni yfir Esjuna? Samkeppnin milli sveitarfélaganna virðist ólík því sem var fyrir hrun, enn harðvítugri en fyrir hrunið þar sem sveitarfélögin bjóða nú upp á margvíslegri lausnir. Bæði skipulagsdrögin sem hér greinir bjóða upp á umhverfi sem hefur sýnt sig að skapar meiri vandamál en þau leysa og bundið hefur fjölmargt fólk á klafa nú þegar. Lítur svo út að hrein sölumennska komi til að skera úr um hvor lausnin verður ofan á og hverju verði meir þjarmað að: gömlu húsunum í miðbænum (efnislegum menningararfi) eða vatnsbólunum, með mengandi flugvelli fyrir ofan Gvendarbrunna, og mögulegu ræktarlandi í útjaðrinum (lifibrauði framtíðarinnar). Má vera að þetta komi til með að taka sig vel út á pappírum ríkisins: Atvinnusköpun í byggingariðnaði og minna skuldug sveitarfélög án þess að ríkið taki neitt tap sem gæti fælt frá erlenda fjárfesta. En áhugavert verður að fylgjast með hvernig ábyrgir stjórnmálamenn munu færa sannfærandi rök fyrir sjálfbærninni (skjölin sem lögbjóða þróunina hafa reyndar innbakað sjálfbærnitungutak án þess að það sé sérlega trúverðugt þegar málin eru skoðuð í heild). Þótt það sé atvinnuskapandi, er það sóun að leggja drög að og vinnu í frekari byggð þegar nóg er til af húsnæði, sumt liggjandi fyrir skemmdum hálfklárað. Ekki síst þegar allt er á huldu um framvindu fólksfjöldans vegna kreppunnar. Lítið sem ekkert bólar á því að unnið sé með aðlögun húsnæðisins sem til er til að sinna hinni raunverulegu þörf sem fyrir liggur. Ekki er vanþörf á íbúðarhúsnæði sem er hentugt í notkun og sem fólk hefur efni á, hér með talið fólk sem ekki hefur komist inn á húsnæðismarkaðinn eða hefur verið hent út af honum vegna hrunsins. Dæmi sýna (t.d. húsnæðisstefna stjórnvalda í Noregi eftir seinna stríð) að það er ekkert samhengi milli efnahags og getu ríkisins til að sjá öllum íbúum fyrir húsnæði á viðráðanlegu verði. En pólitískur vilji þarf að vera fyrir hendi. Þegar kemur að breyttum áherslum í umhverfis- og auðlindastjórnun er viðkvæðið gjarna þetta: „Við viljum ekki fara aftur í torfkofana, er það nokkuð?" Þetta drepur á dreif allri umræðu um alvöru sjálfbærni. Við spyrjum á móti: Hvað skal gera til að byggt umhverfi Reykjavíkursvæðisins geti öðlast eins mikla hæfni til að aðlagast aðstæðum og þola áföll og torfkofarnir? Við gætum þurft á því að halda fyrr en okkur grunar. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson Skoðun Aukið við sóun með einhverjum ráðum Heiðrún Lind Marteinsdóttir Skoðun Hverjir eiga Ísland? Jón Baldvin Hannibalsson Skoðun Hvar er hjálpin sem okkur var lofað? Dagmar Valsdóttir Skoðun SFS skuldar Sigurjón Þórðarson Skoðun Slítum stjórnmálasambandi við Ísrael! Ólafur Ingólfsson Skoðun Áform um fleiri strandveiðidaga: Áhættusöm ákvörðun Svanur Guðmundsson Skoðun Flugnám - Fjórði hluti: Hlutverk Reykjavíkurflugvallar í flugnámi Matthías Arngrímsson Skoðun Strandveiðar eru ekki sóun Jón Þór Stefánsson Skoðun Sanngirni að brenna 230 milljarða króna? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Sanngirni að brenna 230 milljarða króna? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Strandveiðar eru ekki sóun Jón Þór Stefánsson skrifar Skoðun „Ísland mun taka þátt í þvingunaraðgerðum gegn Ísrael náist samstaða fleiri ríkja“ Einar Ólafsson skrifar Skoðun SFS skuldar Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Hvar er hjálpin sem okkur var lofað? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Áform um fleiri strandveiðidaga: Áhættusöm ákvörðun Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson skrifar Skoðun Flugnám - Fjórði hluti: Hlutverk Reykjavíkurflugvallar í flugnámi Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Slítum stjórnmálasambandi við Ísrael! Ólafur Ingólfsson skrifar Skoðun Aukið við sóun með einhverjum ráðum Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Kæru valkyrjur, hatrið sigraði líklega í þetta skiptið Arnar Laxdal skrifar Skoðun Vönduð vinnubrögð - alltaf! Jóna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin stóð af sér áhlaup sérhagsmuna Ásthildur Lóa Þórsdóttir skrifar Skoðun Stjórnmál sem virka og lýðræði sem kemst ekki fyrir í umslagi Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Þversögn Íslands í Palestínumálinu: Um fullveldi, samsekt og réttarríkið Gína Júlía Waltersdóttir skrifar Skoðun Tvöföld bið eftir geislameðferð er of löng Katrín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fröken þjóðarmorð: Þér er ekki boðið! Linda Ósk Árnadóttir,Yousef Ingi Tamimi skrifar Skoðun Linsa Lífsins Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun „Að skrifa söguna“ Var of mikið undir hjá kvennalandsliðinu? Viðar Halldórsson skrifar Skoðun Gervigreind í skólum: Tækifæri til byltingar eða hætta á nýjum ójöfnuði? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Netöryggi til framtíðar Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Aftur á byrjunarreit Hörður Arnarson skrifar Skoðun Norðurlandamet í fúski! Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Flugnám -Þriðji hluti: Samtvinnað (Integrated) eða áfangaskipt (Modular) ATPL flugnám Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Ursula Von der Leyen styður stríðsglæpamenn - Ísland á ekki að þegja Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ursula von der Leyen styður þjóðarmorð! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Hvert er markmið fulltrúalýðræðis? Hlynur Orri Stefánsson,Vilhjálmur Árnason skrifar Skoðun Ég vona að þú gleymir mér ekki Hlynur Már Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvaða einkunn fékkst þú á bílprófinu? Grétar Birgisson skrifar Skoðun Að koma út í lífið með verri forgjöf, hvernig tilfinning er það? Davíð Bergmann skrifar Sjá meira
Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson Skoðun
Skoðun „Ísland mun taka þátt í þvingunaraðgerðum gegn Ísrael náist samstaða fleiri ríkja“ Einar Ólafsson skrifar
Skoðun Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson skrifar
Skoðun Flugnám - Fjórði hluti: Hlutverk Reykjavíkurflugvallar í flugnámi Matthías Arngrímsson skrifar
Skoðun Stjórnmál sem virka og lýðræði sem kemst ekki fyrir í umslagi Þórður Snær Júlíusson skrifar
Skoðun Þversögn Íslands í Palestínumálinu: Um fullveldi, samsekt og réttarríkið Gína Júlía Waltersdóttir skrifar
Skoðun Gervigreind í skólum: Tækifæri til byltingar eða hætta á nýjum ójöfnuði? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Flugnám -Þriðji hluti: Samtvinnað (Integrated) eða áfangaskipt (Modular) ATPL flugnám Matthías Arngrímsson skrifar
Skoðun Ursula Von der Leyen styður stríðsglæpamenn - Ísland á ekki að þegja Helen Ólafsdóttir skrifar
Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson Skoðun