Ótrúlegt að fá Þursaflokkinn 24. maí 2012 17:30 „
Það er ótrúlegt að fá þá því þeir spila svo sjaldan," segir grínistinn Ari Eldjárn. Þursaflokkurinn spilar á minningartónleikum um bróður Ara, gítarleikarann Kristján Eldjárn, sem hefði orðið fertugur í ár. Þursarnir hafa tvisvar áður leikið á stóra sviði Þjóðleikhússins; á minningartónleikum Karls Sighvatssonar árið 1991 og þegar þeir tóku þar upp tónleikaplötu sína „Á hljómleikum" 1980. „Þetta var ein af uppáhaldshljómsveitunum hans [Kristjáns]. Hann var sjálfur í hljómsveit sem hét Dvergaflokkurinn en nafnið var virðingarvottur við Þursaflokkinn. Þeir voru allir vinir hans og það er rosalega gaman að þeir skyldu gera þetta," segir Ari. Tónleikarnir verða á stóra sviði Þjóðleikhússins 7. júní. Meðal annarra flytjenda eru Bubbi Morthens, Páll Óskar, Ham, Víkingur Heiðar, Ragnhildur Gísladóttir, Jack Magnet, Sykur og Ari sjálfur. Hann vill ekkert tjá sig um sitt atriði nema að það verði svakalegt.Ari Eldjárn.Þetta verður í annað sinn sem minningartónleikar um Kristján eru haldnir. Síðast var það gert í Gamla bíói árið 2003. Allur ágóði af tónleikunum rennur í minningarsjóð Kristjáns. Venjulega eru styrkir úr honum afhentir 16. júní annað hvert ár en vegna fertugsafmælisins verður það gert í ár, rétt eins og í fyrra. Tónleikarnir í Þjóðleikhúsinu verða teknir upp og verða þeir hugsanlega gefnir út í framhaldinu. Miðasala fer fram á Midi.is og Leikhusid.is. -fb
Mest lesið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Megas er látinn Lífið Fleiri fréttir Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ Sjá meira