Eigum sameiginlega norðurslóðahagsmuni 22. maí 2012 05:00 Jean-Claude Gascard og Jean-Charles Pomerol eru hér á landi til að efla samvinnu í rannsóknum á norðurheimskautssvæðinu. Fréttablaðið/GVA
Tveir franskir vísindamenn eru staddir hér á landi til að efla samvinnu í vísindarannsóknum á norðurheimskautssvæðinu. Segja Ísland og Frakkland geta boðið hvort öðru upp á margt á hinu mikilvæga sviði loftslagsrannsókna. Töluverðir hagsmunir geta legið í auknu samstarfi Íslands og Frakklands í vísindarannsóknum á norðurslóð. Þetta segja frönsku vísindamennirnir Jean-Charles Pomerol og Jean-Claude Gascard, sem eru staddir hér á landi. Tilgangur ferðarinnar er að efla tengsl milli vísindamanna í löndunum tveimur í gegnum samevrópsk rannsóknaverkefni. „Þessi verkefni eru afar mikilvæg,“ segir Pomerol. „Þau einblína á norðurskautið og í því tilliti þarf ekki að fjölyrða um mikilvægi Íslands. Sjáðu bara hvar það er á heimskortinu,“ bætir hann við og hlær. Á fundi Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra með frönskum starfsbróður sínum í vor var ákveðið að efla samstarf ríkjanna í rannsóknum á norðurslóð, en þó Frakkland eigi að sjálfsögðu ekki land að heimskautinu hafa loftslagsbreytingar í þessum heimshluta áhrif mjög víða. Gascard, sem stýrði meðal annars Damocles-rannsóknarverkefninu á norðurheimskautinu á árunum 2005 til 2009, stýrir einnig Access-verkefninu sem hófst í fyrra. Bæði þessi verkefni rannsaka áhrif loftslagsbreytinga og eru styrkt af framkvæmdastjórn ESB. „Við erum að rannsaka tengingar milli loftslagsbreytinga og þróunar á félagshagfræðilegum þáttum eins og fiskveiðum, hafflutningum og olíu- og gasvinnslu,“ segir Gascard og bætir því við að gagnkvæmir hagsmunir liggi í frekara rannsóknasamstarfi milli Íslands og Frakklands. „Ísland er auðvitað land á norðurslóð og hér er mikil þekking á aðstæðum í þessum heimshluta. Ekki aðeins varðandi loftslagsmál, heldur líka áhrif sjávar á loftslagið og á efnahagsleg mál, sérstaklega fiskveiðar. Þannig er Ísland einstakt land og heimurinn getur notið góðs af sérþekkingu Íslendinga og íslenskra vísindamanna og þeirra gagna sem hér eru til.“ Á móti, segir Gascard, getur Frakkland boðið upp á margt fyrir íslenska vísindamenn, til dæmis aðstöðu og tæknilausnir eins og gervihnattaeftirlit hjá geimvísindastofnun Frakklands og veðurstofu sem hefur mikla reynslu af loftslagsrannsóknum. Gascard og Pomerol fara til Akureyrar í dag þar sem þeir munu funda með forsvarsmönnum Háskólans á Akureyri. thorgils@frettabladid.is
Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent Fleiri fréttir Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Sjá meira