Fékk margoft gæsahúð við tökur 29. maí 2012 10:00 Takast á við drauga Daníel Bjarnason og Erlendur Sveinsson vinna að gerð sjónvarpsþáttanna Óupplýst. Þættirnir hefja göngu sína á Skjáeinum í haust. fréttablaðið/valli
Daníel Bjarnason og Erlendur Sveinsson vinna að gerð sjónvarpsþáttanna Óupplýst sem sýndir verða á Skjáeinum í haust. Þættirnir eru byggðir á sögum fólks af yfirnáttúrulegum atburðum. Að sögn Daníels kviknaði hugmyndin að þáttunum er hann og Erlendur unnu saman við gerð sjónvarpsþáttanna Málið með Sölva, en báðir hafa þeir mikinn áhuga á málum sem þessum og töldu að sögurnar gætu orðið að athyglisverðu sjónvarpsefni. „Við höfum fundið margar frábærar sögur með aðstoð vina og vandamanna. Flestir sem við höfðum samband við voru tilbúnir til að ræða þessi mál við okkur þó sumum hafi þótt það erfiðara en öðrum," segir Daníel. Sögurnar eru ólíkar og margar og segja frá samskiptum fólks við drauga, afturgöngur og geimverur en einnig er rætt við berdreymið fólk og miðla. „Trúin á aðra heima og yfirnáttúrulegar verur er enn mjög rík í þjóðarsálinni og maður finnur vel fyrir því þegar maður fer að ræða þessi mál við fólk." Daníel og Erlendur munu einnig heimsækja hús sem reimt er í og koma þar fyrir myndavélum í von um að ná myndum af því sem þar er á sveimi. Inntur eftir því hvort þeir hafi sjálfir orðið varir við yfirskilvitlegar verur á lífsleiðinni svara Daníel neitandi. „Ég hef ekki lent í neinu slíku sjálfur og er mjög þakklátur fyrir það. En að sjálfsögðu erum við búnir að vera skíthræddir á meðan á tökum stendur og fengum margoft gæsahúð yfir þessum sögum. Ég sé líka fram á að sofa ekkert í sumar á meðan ég klippi þættina til. Ætli ég verði ekki að reyna að gera það á daginn og enda svo á gamanþætti fyrir svefninn til að hafa þetta af," segir Daníel. Þættirnir verða sex talsins og hefja göngu sína þann 3. september. Enn er verið að leita að sögum í þáttinn og hægt er að senda ábendingar á netfangið danielbjarna@skjarinn.is. -sm
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Missti röddina á ögurstundu Lífið Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Lífið Jólahlaðborð og jólabröns á verði sem kemur á óvart Lífið samstarf Fleiri fréttir „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Sjá meira