Innlent

Hellti bensíni á hurðina og kveikti í

Lögreglan var kölluð að húsi við Bríetartún, sem áður hét Skúlagata, í miðborg Reykjavíkur rétt eftir hádegi í dag en þar hafði bensíni verið hellt á útidyr og kveikt í. Sá sem er grunaður um verknaðinn var handtekinn á vettvangi. Eldurinn var slökktur með handslökkvitæki sem var innandyra í húsinu en skemmdir urðu á hurð. Að sögn lögreglu var hinn handtekni undir áhrifum vímugjafa og lét ófriðlega. Þannig lét hann alla leið inn í fangaklefa og slasaðist einn lögreglumaður í þeim átökum. Rætt verður við manninn þegar ástand hans skánar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×