Hádegismatur skólabarna hækkaður í Hafnarfirði 26. nóvember 2012 14:29
Meirihluti fræðsluráðs Hafnarfjarðar samþykkti í dag fjárhagsáætlun fræðslusviðs 2013. Þar kemur meðal annars fram að allar gjaldskrár hækki næsta haust sem svarar verðbólgu, sem er um 4% samkvæmt verðbólguspá, nema matur í leik- og grunnskólum, sem hækki í samræmi við vísitöluhækkun matar og drykkjar, sem er nokkuð meiri. Áheyrnarfulltrúi foreldra grunnskólabarna bókaði mótmæli við þessu. Foreldraráð Hafnarfjarðar lýsti því yfir áhyggjum sínum á hækkunum á gjaldskrá hádegismatar nemenda í grunnskólum sem koma munu harkalega niður á fjölskyldum í bænum að þeirra mati. Meðal þess sem fram kemur í fjárhagsáætlun fræðslusviðs er að byggt verði íþróttahús með fjórum kennslustofum við Áslandsskóla og tekið í notkun haustið 2013. Rekstrarkostnaður er nettó allt að 14 milljónum króna á næsta ári, en framkvæmdin yrði fjármögnuð af fasteignafélaginu. Húsið yrði í eigu bæjarins frá upphafi. Fyrirvari er um að samningar náist við eigendur Áslandsskólalóðarinnar undir þetta nýja hús. Einnig var samþykkt að ráðinn verði talmeinafræðingur á Skólaskrifstofu, en nokkur biðlisti hefur myndast vegna aukinnar þarfar fyrir talmeinaþjónustu í leik- og grunnskólum. Foreldráð Hafnarfjarðar fagnar því sérstaklega. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks sitja hjá við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fræðslusviðs í fræðsluráði og ætla þess í stað fjalla um fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar í heild sinni í bæjarráði og í bæjarstjórn.
Mest lesið Lést við tökur á Emily in Paris Erlent Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Innlent Níu sviptir leyfi meðan á annað hundrað kvartana hafa borist Innlent Ferðamaður neitaði að borga reikninginn og lét öllum illum látum Innlent Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Innlent Eigandi Sante segir málið gjörunnið: „Frelsið sigrar alltaf að lokum” Innlent „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Erlent Leiðist „linnulaust væl” Íslendinga yfir réttu málfari Innlent Farþegar látnir sofa á gólfinu á hóteli í Keflavík Innlent „Beint frá býli dagurinn“ býður landsmönnum í heimsókn Innlent Fleiri fréttir Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Gríðarlegt magn myndefnis til skoðunar hjá lögreglu Leiðist „linnulaust væl” Íslendinga yfir réttu málfari Eigandi Sante segir málið gjörunnið: „Frelsið sigrar alltaf að lokum” 99 ára gömul tombóla á Borg í Grímsnesi og engin núll Vínsali býst við ákæru, kúnnalisti Epstein og stemming í bænum Reiðhjólabændur með vaktað hjólastæði í Traðarkoti til miðnættis Níu sviptir leyfi meðan á annað hundrað kvartana hafa borist „Beint frá býli dagurinn“ býður landsmönnum í heimsókn Útihátíð fyrir ungmenni gekk eins og í sögu Ferðamaður neitaði að borga reikninginn og lét öllum illum látum Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Sjö ára hlaupari kemur hópnum yfir línuna í sjötta maraþoninu á morgun Skoða að flýta aðgerðum í húsnæðismálum til að ná tökum á verðbólgunni „Versti tíminn, allra versti tíminn“ Gamall þristur strand vegna skorts á bensíni Hátt í tveggja tíma veðmálaauglýsing í boði Rúv Hraðbankinn ófundinn, hungursneyð og skólar hefjast Farþegar látnir sofa á gólfinu á hóteli í Keflavík Grunaður hraðbankaþjófur í gæslu eftir allt saman Þurfa að bíða lengur eftir að komast í Sundhöllina Bíll konunnar sást á upptöku Þáttastjórnendum X-sins sagt upp Líta málið „mjög alvarlegum augum“ Hella áfenginu niður og hringja í foreldra Tuttugu milljónir í bankanum og kona í gæsluvarðhaldi Rigning og rok í methlaupi Sleppt úr gæsluvarðhaldi en málið enn til rannsóknar Hlaup hafið úr Hafrafellslóni Hungursneyð lýst yfir og forsætisráðherra segir alþjóðasamfélagið ráðalaust Sjá meira