Innlent

Lögreglan á Akureyri þurfti aftur að smala hrossum

Lögreglumenn frá Akureyri þurftu enn að smala hrossum af þjóðvegum við Eyjafjörð í gærkvöldi og í nótt, en hætt er við slysum þar sem þau sjást illa í myrkrinu.

Girðingar eru víða á kafii í snjó þannig að þær eru hrossunum engin fyrirstaða í leit þeirra að æti, því bithagar eru víðast huldir snjó.

Við þessar aðstæður ættu hestamenn helst að taka hrossin á hús og fóðra þau þar, að sögn lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×