Enski boltinn

Julio Cesar ræddi við Arsenal í sumar

SÁP skrifar
Mynd/ Getty Images
Julio Cesar, markvörður QPR, heldur því fram í enskum fjölmiðlum um helgina að hann hafi rætt við Arsenal fyrr í sumar áður en hann í raðir QPR.

Þessi brasilíski markvörður kom til liðsins í sumar frá Inter Milan en félagsskiptin komu virkilega á óvart.

„Það kom aldrei neitt annað til greina en að fara til félags í London en mér hefur alltaf líkað vel við þá borg." „Ég elska lífið í þessari borg og það er mikilvægt fyrir mig og mína fjölskyldu að kynnast þessari menningu."

„Ég ræddi við Arsenal í byrjun sumarsins og samningaviðræður gengu vel, en alveg á síðustu mínútu ákvað ég að ganga til liðs við QPR."

„Forráðamenn félagsins hafa samið við ellefu leikmenn að undanförnu og það er erfitt að slípa þá alla saman undir eins, en það mun koma."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×