Vilja vita hvort Alþingi var gert viðvart um tafir á Oracle-málinu Jón Hákon Halldórsson skrifar 9. október 2012 13:08 Valgerður Bjarnadóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd ætlar að senda Sveini Arasyni, ríkisendurskoðanda bréf, síðar í dag vegna Oracle málsins svokallaða. Málið snýst um launa- og bókhaldskerfi ríkisins, en kostnaður við innleiðingu þess fór algjörlega úr böndunum. Skýrsla sem Ríkisendurskoðun var falið að vinna um verkefnið hefur verið fjölda ára í vinnslu. Valgerður Bjarnadóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, sendir bréfið fyrir hönd nefndarinnar. Í samtali við Vísi segir hún að spurt sé út í verklag Ríkisendurskoðunar, hvort unnin sé starfsáætlun um verk sem ekki eru reglubundin, til hversu langs tíma slík áætlun sé gerð og hvort hún sé endurskoðuð. Þá er spurt hvort skýrslan um Oracle-kerfið sé á slíkri áætlun. „Við spyrjum líka hvort Alþingi hafi verið gert viðvart þegar ákveðið var að fresta verkinu. Og ef það var ekki gert, af hverju ekki," segir Valgerður Bjarnadóttir, í samtali við Vísi. Þá er líka spurt hvort Ríkisendurskoðun hafi sett viðmið um vinnslutíma úttekta. Einnig hvort Ríkisendurskoðun hafi sett viðmið um upplýsingagjöf til fjölmiðla á meðan á vinnslu verkefna stendur. Áður hafði Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, sent Sveini bréf þar sem þess er krafist að vinna við endurskoðun Oracle-skýrslunnar verði lokið fyrir mánaðamót. Svar frá Sveini barst forsætisnefnd í gær en ekkert hefur verið látið uppi um innihald þess.
Mest lesið Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Innlent Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent Vill breyta lögum um .is Innlent Yfirgefa landið mögulega um borð í Bandero Innlent „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Erlent Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Erlent Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Erlent Gríðarlegur fjöldi fyrir norðan og mikil óþolinmæði á heimleið Innlent Fleiri fréttir Engir minkar hafi ratað í gildrur síðustu sólarhringa Yfirgefa landið mögulega um borð í Bandero Gríðarlegur fjöldi fyrir norðan og mikil óþolinmæði á heimleið Kólumbíumenn í haldi og skipverjar Bandero bíða örlaga sinna Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Heimir Hannesson er látinn Breytir ekki veðurspám til að þóknast hátíðahöldurum Skipar nýja bótanefnd Vill breyta lögum um .is Enn eitt innbrotið í miðbænum Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Sjá meira