Innlent

Milljóna króna halli hjá kaffistofu Samhjálpar

Lóa Pind Aldísardóttir. skrifar
Það stefnir í milljóna króna halla á rekstri kaffistofu Samhjálpar í ár. Rekstrarstjórinn segir fordóma ríkja til kaffistofunnar. Þó fjölgi skjólstæðingum þeirra um leið og matvælaaðstoð annarra hjálparsamtaka fer í sumarfrí.

Ása Óskarsdóttir hefur komið reglulega á kaffistofu Samhjálpar síðustu fimm ár.

„Ég er öryrki, hef mjög litlar bætur og neyðist til að koma á svona hjálparstofnanir. Ég hef farið í mæðrastyrksnefnd, þar er lokað. Líka fjölskylduhjálpin. Þá hef ég náð í næringu hér," segir Ása þegar hún er spurð hvers vegna hún komi á kaffistofu Samhjálpar.

„Um leið og það dregst eitthvað saman í matargjöfum þá koma fleiri hingað," segir Kolbrún Pálína, matseljan á kaffistofunni.

Er þetta nánast eini maturinn sem þú færð? spyr fréttakona.

„Ég á núðlusúpur og svona heima," segir Ása.

Hún segir að þú sért heimalingur, segir fréttakona.

„Það má segja það. Þetta er það eina sem maður hefur að éta," segir Guðjón Stefánsson, gestur á kaffistofunni.

Guðjón og Ása eru bæði á örorkubótum en segja bæturnar ekki hrökkva til.

„Ég get keypt í byrjun mánaðarins rosalegan mat. Og svo þegar mánuðurinn er hálfnaður fer maður að skrimta," segir Ása.

Auralitlir gestir stinga samt klinki í baukinn, eigi þeir eitthvað aflögu og þótt birgjar séu örlátir segir Vilhjálmur Svan að 8 milljóna króna halli hafi verið á rekstrinum í fyrra - og stefni í svipaðan halla í ár. Gestirnir eiga allir blankheit sameiginleg, en andinn er góður.

„Sumir halda að þetta sé logandi í fylliríi og dópneyslu alla daga en það er ekki. Hér er bara friður og ró. Hérna geta allir komið og fengið sér að borða án þess að verða fyrir neinu áreiti," segir Vilhjálmur Svan, rekstrarstjóri kaffistofu Samhjálpar.

Vilji einhver veita kaffistofunni liðsinni sitt er hægt að leggja inn á reikning hennar.

Reikningsnr. 101-26-31880

Kt. 690109-2880




Fleiri fréttir

Sjá meira


×