Lífið

Tónleikaveisla á ársafmæli Faktorý

Skemmtistaðurinn Faktorý er eins árs. Í tilefni afmælisins verður tónleikaveisla um helgina, þar sem margar frábærar hljómsveitir spila fyrir gesti. Frítt er inn á alla viðburðina.
Skemmtistaðurinn Faktorý er eins árs. Í tilefni afmælisins verður tónleikaveisla um helgina, þar sem margar frábærar hljómsveitir spila fyrir gesti. Frítt er inn á alla viðburðina.
Faktorý býður til heljarinnar tónleikaveislu um helgina í tilefni ársafmæli skemmtistaðarins. Það voru hljómsveitirnar Hjálmar, Agent Fresco, Mammút, Feldberg, Benni Hemm Hemm og Retro Stefson sem stigu á svið og vígðu Faktorý helgina 15.-18. júlí í fyrra.

Í kvöld kl. 20 og annað kvöld ætlar DJ Danni Deluxe að þeyta skífum. Á föstudaginn spila hljómsveitirnar Agent Fresco, For a Minor Reflection, Lockerbie og Úlfur Úlfur, en á laugardag ætla Brain Police, The Vintage Caravan og Spector að spila fyrir tónlistarþyrsta gesti. Frítt er inn öll kvöldin, en tónleikarnir á laugardag og sunnudag hefjast kl. 23.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.