Langt ferðalag Eurovision-fara framundan til Bakú 16. maí 2011 14:00 Vinir Sjonna stóðu sig vel á sviðinu í Dusseldorf en höfnuðu í 20.sæti. Það var hins vegar lag Aserbaidjan sem bar sigur úr býtum. Og það hefur í för með sér eitt lengsta ferðalag sem nokkur íslenskur Eurovision-fari þarf að leggja á sig á næsta ári. Nordic PHotos/Getty
Íslenska lagið Coming Home með Vinum Sjonna eftir Þórunni Ernu Clausen og Sigurjón Brink hafnaði í 20.sæti. Lagið fékk engu að síður 61 stig og sexmenningarnir fluttu lagið óaðfinnalega á sviðinu í Dusseldorf. Stigin dreifðust óvenju mikið í keppninni og Eurovision-sérfræðingar eru sammála um að keppnin hafi ekki verið svona jöfn í langan tíma. Að endingu var það hins vegar Aserbaídsjan sem fór með sigur af hólmi með lagið Running Scared með þeim Nigar og Eldar. Aserbaídsjan er tiltölulega nýtt í þessari keppni og árangur þess því eftirtektarverður. Þetta þýðir hins vegar að fulltrúar Íslands á næsta ári eiga fyrir höndum ansi skrautlegt og langt ferðalag enda Aserbaídsjan það land í Evrópu sem er lengst frá Íslandi. Auk þess mun keppnin hefjast á miðnætti að staðartíma og ljúka um klukkan hálf fjögur um nóttina. „Það hefði óneitanlega verið hagstæðara ef Svíþjóð hefði unnið," segir Sigrún Stefánsdóttir, dagskrárstjóri RÚV. Hún bætir því við að hún sé ákaflega stolt af Vinum Sjonna þótt þeir hefðu mátt enda aðeins ofar. „Svona í ljósi þess að þeir höfnuðu í fjórða sæti í undanriðlunum." Heimir Guðjónsson, þjálfari bikarameistara FH, fór fyrir liðinu sem keppti við Aktobe frá samnefndri borg í Aserbaídsjan í forkeppni meistaradeildar Evrópu árið 2009. „Við flugum til Kaupmannahafnar og leigðum okkur vél þaðan til að fljúga með til Aserbaíjdan, þetta var allsvakalegt ferðalag. En þeir sem við ræddum við sögðu að þetta væri hagstæðara," segir Heimir. Kristinn Jakobsson, milliríkjadómari, dæmdi leik í höfuðborginni Bakú og hann var í loftinu í fimmtán klukkutíma. „Við gistum eina nótt í Vín en alls voru þetta fimmtán klukkutímar. Hins vegar kom það ótrúlega á óvart hversu mikil menning var í kringum höfuðborgina og allt sem snéri að okkur var fyrsta flokks." Sigrún segir að þau verði einfaldlega að taka örlögum sínum en lykilatriðið sé að bregðast skjótt við. „Við verðum bara vera fljót að skoða hagstæð flug. Vonandi verður síðan hótelverðið bara hagstæðara en í Þýskalandi." freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Missti röddina á ögurstundu Lífið Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Lífið Jólahlaðborð og jólabröns á verði sem kemur á óvart Lífið samstarf Fleiri fréttir „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Sjá meira