Innlent

Börn óléttra kvenna í ofþyngd gætu fengið ýmsa kvilla síðar á ævinni

Erla Hlynsdóttir skrifar
Börn kvenna í ofþyngd hafa tilhneigingu til að vera of þung og þjást af sykursýki síðar á ævinni. Ef móðir þjáist af of háum blóðþrýstingi á meðgöngu aukast líkur á að börnin fái hjarta- og æðasjúkdóma.

Við sögðum frá því í fréttum okkar á sunnudag að þyngstu konurnar sem koma upp á fæðingadeild séu um 180 kíló. Nokkrum sinnum á ári fæða konur sem eru í kring um 150 kíló og er það daglegt brauð að konur á steypinum vegi yfir 100 kíló.

„Það sem verið er að beina sjónum að núna er einmitt þetta að reyna að átta sig á áhættuþáttum hjá ófrískum konum til þess að reyna að hjálpa þeim að fyrirbyggja vandamál seinna í framtíðinni," segir Hulda Hjartardóttir, formaður Félags íslenskra fæðingar- og kvensjúkdómalækna.

Algengasti fylgikvilli ofþyngdar móður á meðgöngu er sykursýki. Fæðingin gengur almenn verr hjá konum í ofþyngd og þær þarf oft að setja af stað eða taka þarf börnin með keisara, þó reynt sé eftir fremsta megni að aðstoða þær við að fæða eðlilega.

Hulda segir að fylgikvillar ofþyngdar móður á meðgöngu hafi mest áhrif á móðurina. „En það hefur líka sýnt sig að börn kvenna sem eru of þungar hafa líka tilhneigingu til að verða of þung og þjást frekar af sykursýki seinna meir á ævinni, og það er eins og það fari ákveðin breyting í gang í móðurkviði hjá þessum börnum sem gerir það að verkum að þau þjást af ýmsum kvillum seinna meir á ævinni," segir Hulda.

Í flestum tilfellum fæðast börn kvenna í ofþyngd alveg heilbrigð.

„En ef það er líka hár blóðþrýstingur, ég tala nú ekki um vaxtarhindrun í hina áttina þá eiga þessi börn frekar á hættu að þjást af hjarta- og æðasjúkdómum sjálf síðar meir á ævinni. Þannig að heilsufar á meðgöngu virðist ná langt út fyrir meðgönguna, hefur áhrif síðar meir á ævinni," segir Hulda að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×