Bylgjubann: Yfirlýsing frá Jóhanni G 18. febrúar 2011 10:18 Í Fréttablaðinu í dag á bls. 38 undir yfirskriftinni „Bylgjubann Jóhanns G er ólöglegt" segir: „Tónlistarmaðurinn Jóhann G Jóhannsson hefur engar lagalegar heimildir fyrir því að banna lögin sín á Bylgjunni að mati STEFs, Sambands tónskálda og textahöfunda." Mér finnst hæpið að hér rétt eftir haft eða um réttan skilning að ræða. Í lögum um einkarétt höfundar segir: „Þessi einkaréttur leiðir til þess, að fá verður samþykki höfundar, ef ætlunin er að leika tónlist hans opinberlega, s.s. í útvarpi. Höfundur á rétt á greiðslu fyrir þessi afnot, enda er um að ræða eign hans. Heimildarlaus opinber tónflutningur er refsiverður og þeir aðilar, sem að honum standa, bera jafnframt ábyrgð á bótum til höfunda." Mér finnst að þetta ætti að vera nógu skýrt til þess að menn velkist ekki í vafa um lögmætti banns míns. STEF er innheimtufyrirtæki og ég hef falið því að innheimta afnotargjöld sem greidd eru fyrir spilun laga minna (sem eru ranglega skattlögð af ríkinu sem laun en ættu að skattleggjast sem leigutekjur - óréttur sem tónlistarmenn eru beyttir og ætti fyrir löngu að vera búið að kæra til umboðsmanns alþingis) en hefur að öðru leyti ekkert með einkarétt minn sem höfundar að gera. Ef hinsvegar Bylgjan ætlar ekki að virða bann mitt sem á að taka gildi 22. febrúar nk. og vanvirða þannig eignarrétt minn á einhverjum óljósum forsendum, þá neiðist ég til að grípa til alsherjar banns á spilun tónlilstar minnar sem samkvæmt upplýsingum frá STEFi er framkvæmanlegt með eins mánaðar fyrirvara. Forsvarsmenn Bylgjunnar geta valið þarna á milli. Þeir hafa líka í höndunum niðurstöður hlustendakönnunar FTT sem unnin var af Capacent sem þeir gætu nýtt til að laga til í eigin ranni. Þar kemur fram álit hlustenda og tónlistarmanna á ýmsu sem betur má fara á þessari stöð. Í stað þess að kljást við mig, sem vill þeim vel, ættu þeir að snúa sér að starfsmönnum tónlistarsviðs Bylgjunnar sem með gjörræðislegri framkomu sinni og stjórnunarháttum, hafa stórskemmt ímynd Bylgjunnar, eins og sjá má m.a. af viðbrögðum við umfjöllun fjölmiðla á netinu og síðu minni: www.facebook.com/johann.g.johannsson. Í því sambandi vil ég sérstaklega nefna að fyrsti heiðursfélagi FTT, Ingibjörg Þorbergs, tónskáld, söngkona, brautryðjandi á sínu sviði og þjóðargersemi, hringdi í mig í gær til að þakka mér það að standa upp og vekja athygli á hvernig málum er háttað þegar kemur að íslenskri tónlist og tónlistarmönnum. Ég frétti að hún hefði einnig hringt í STEF til að koma ánægju sinni á framfæri og í formann FTT, Jakob Frímann Magnússon. Þá hvatti Þórir Baldursson, heiðursfélagi FTT, jafnframt tilnefndur til heiðursverðlauna Íslenskra tónlistarverðlauna, þakkaði fyrir málefnalegan málflutning í Víðsjá á Rás 1 í gær. Þetta kann ég að meta og veit að með svona fólk að baki mér er ég að gera eitthvað jákvætt. Ég nota tækifærið til að benda á ójafna semkeppnisaðstöðu íslenskrar tónlistar gagnvart bandarískri á Bylgjunni. Þar sem Bandaríkinn hafa ekki samþykkt Rómarsáttmálann þarf Bylgjan ekki að greiða flytjendagjald af henni á meðan hún þarf að greiða flytjendagjald af íslenskri tónlist sem og tónlist annarra þjóða, sem eru aðilar að Rómarsáttmálanum. Á ársgrundvelli munar þetta töluverðum upphæðum. Gæti þetta verið ein skýringin á ofspilun bandarískra tónlistar á Bylgjunni? Í öðrum greinum myndi þetta flokkast undir ójafna samkeppnisaðstöðu. Í lokin vil ég taka af allan vafa um að ég fer með rétt mál hvað bann mitt varðar með því að vitna í samning STEFs og 365 ljósvakamiðla: „365 ljósvakamiðlum er heimilt, án sérstaks leyfis hverju sinni, að flytja í hljóðvarpi og sjónvarpi félagsins tónverk, sem verndar njóta samkvæmt höfundalögum nr. 73/1972, enda sé fullnægt skilyrðum höfundalaga og samnings þessa. Einstökum höfundum, er þó eftir sem áður heimilt að leggja bann við flutningi verka sinna í hljóðvarpi og sjónvarpi, enda tilkynni STEF bann þetta með eins mánaðar fyrirvara." Virðingarfyllst, Jóhann G Jóhannsson, tónlistar- og myndlistarmaður Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun