Hótar því að fiskveiðiflotinn sigli í land Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 3. janúar 2011 18:41
Stjórnarmaður í Sjómannafélagi Íslands hótar því að fiskveiðiflotinn sigli í land verði sjómönnum ekki bætt kjararýrnun vegna lækkunar sjómannaafsláttar. Fyrsti hluti lækkunarinnar tók gildi nú um áramótin. Sjómannaafsláttur lækkaði úr 987 krónum í 740 krónur um áramótin, en það er upphæðin sem sjómenn geta dregið af skattbyrði sinni fyrir hvern dag sem þeir eyða á sjó. Næstu áramót lækkar hann svo í 493 krónur, þarnæstu áramót í 246 krónur þar til hann verður loks afnuminn 1. janúar 2014. „Þetta er náttúrulega árás stjórnvalda á kjör sjómanna. Þetta getur aldrei gengið upp," segir Birgir Hólm Björgvinsson, stjórnarmaður í Sjómannafélagi Íslands. Birgir segir að fyrir marga sjómenn sé skerðingin töluverð. Fyrir breytingarnar gat afslátturinn mest numið um 360 þúsund krónum á ári og lækkar nú um fjórðung fyrsta kastið. Hann segir að ríkisstjórnin eigi að bakka með breytinguna. Annars verði reynt að fá kjararýrnunina bætta í næstu kjarasamningum, en samningar sjómanna eru nú lausir. Í ályktun Sjómannafélagsins frá aðalfundi þess skömmu fyrir áramót er bent á að sjómenn hafi notið sérstakra skattakjara í yfir 50 ár, þó ívilnun í nágrannaríkjum sé ívið meiri. Til dæmis er nefnt að skattaafsláttur norskra sjómanna geti numið allt að einni og hálfri milljón íslenskra króna. Sjómenn muni ekki láta ósvífni stjórnvalda ganga yfir sig, heldur mæta til leiks af fullri hörku. „Það er náttúrulega ekki nema eitt sem dugar. Það verður að segjast eins og er; það er bara stopp. Ef þetta næst ekki, þá verður ekki skrifað undir kjarasamninga, það er ósköp einfalt. Ef allir sigla í land, þá held ég að það sé lítið fyrir þessa ríkisstjórn að gera, hún þarf bara að yfirgefa svæðið," segir Birgir. Hann segir viðræður vegna kjarasamninganna í startholunum, en hann vonast til að þeir fari sem fyrst af stað svo hægt sé að komast að niðurstöðu. Hann býst þó við erfiðum viðræðum. En finnst honum ekkert skrítið að ein stétt manna fái þennan afslátt á tekjuskatti umfram allar aðrar? „Nei, það þykir mér ekki. Ég veit ekki annað en þetta sé í mörgum stéttum þjóðfélagsins. Til dæmis dagpeningar ríkisstarfsmanna sem eru skattfrjálsir. Það má líka fara út í það að láta þetta hætta að heita sjómannaafslátt og láta það heita dagpeninga. Þá er málið leyst." Hægt er að horfa á ítarlegri útgáfu sjónvarpsfréttar Stöðvar 2 um málið með þessari frétt.
Mest lesið Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Innlent Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Innlent Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Erlent Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Tveir grunaðir um að rækta hundruð kannabisplantna Innlent „Einfaldlega ósammála“ gagnrýni ráðuneytisins Innlent Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Innlent Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Innlent Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Innlent Engar kveðjur fengið frá Kristrúnu Innlent Fleiri fréttir Púðurtunnan Vestanhafs, þandar taugar og hörð lending Engar kveðjur fengið frá Kristrúnu Borgarfulltrúi fer ekki aftur fram og hættir í Pírötum Ekki hægt að fullyrða að andlát hafi tengst Covid-19 bólusetningu „Einfaldlega ósammála“ gagnrýni ráðuneytisins Kynna einn frambjóðanda á dag næstu daga Ekki skrýtið að eitthvað bresti vegna álags á framlínustarfsmenn Tveir grunaðir um að rækta hundruð kannabisplantna Verkalýðshreyfingin úti á túni með sitt tal? Mál rússnesku fjölskyldunnar: Króatía sé talið öruggt land Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Heiða tekur annað sætið í Reykjavík Meiri hveralykt af vatninu vegna viðhalds og viðgerðar Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Heiða hefur ekki heldur svarað uppstillingarnefnd Helga Kristín gengur til liðs við Miðflokkinn Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Stefnir í hallarekstur og uppsagnir hjá Stígamótum „Þetta er auðvitað glæsilegt fyrir flokkinn“ Þingfundi ekki frestað vegna handboltans Leitað að fleira fólki á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Eldur kviknaði í Strætó Starfslokasamningar kostað undirstofnanir fleiri hundruð milljónir Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Öflugur 92 ára dósa og plast plokkari á Suðurlandi Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni „Förum strax í lífsbjargandi aðgerðir“ Sjá meira