Helena og félagar töpuðu úrslitaleiknum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. mars 2011 11:30 Helena á fullu í leiknum í nótt. Mynd/AP
Helena Sverrisdóttir tókst ekki að vinna titil á sínu lokaári í bandaríska háskólaboltanum en TCU tapaði nótt fyrir Utah í úrslitum Mountain West-deildarinnar. Leikurinn var framlengdur en á endanum vann Utah fimm stiga sigur, 52-47. Utah skoraði aðeins tólf stig í síðari hálfleik sem er það lægsta sem hefur verið skorað í sögu úrslitakeppninnar í þessari deild. TCU var tíu stigum undir í hálfleik en náðu að berja frá sér í þeim síðari og komast yfir, 38-37, þegar tæpar fjórar mínútur voru til leiksloka. Liðin skiptust á að vera í forystu síðustu mínúturnar en á endanum jafnaði TCU metin þegar níu sekúndur voru eftir og því framlengt. „Við vildum byrja vel í leiknum,“ sagði Helena í viðtali á heimasíðu síns liðs. „Það gerðist ekki en mér fannst þetta ganga ágætlega hjá okkur í seinni hálfleik.“ TCU byrjaði ágætlega í framlengingunni en svo tók Utah öll völd og kláraði leikinn á 10-2 spretti og vann þar með sinn fjórða meistaratitil í deildinni. Það kemur í ljós á mánudagskvöldið hvort að TCU verði boðið að keppa í stóru keppninni, sjálfri NCAA-úrslitakeppninni sem oftast er kölluð March Madness. Það er vissulega óskandi að Helena fái tækifæri til að kveðja sitt lið á því stóra sviði. Helena var með alls tíu stig í leiknum en hún tók þar að auki átta fráköst og gaf fjórar stoðsendingar. Hún stal boltanum tvívegis en tapaði honum alls þrisvar í leiknum. Skotnýting hennar var ekki upp á sitt besta en alls hitti hún úr þremur af ellefu skotum sínum í leiknum, þar af einu af fimm þriggja stiga skotum.
Körfubolti Mest lesið Þóra grætur í koddann ef Þorsteinn verður áfram með liðið Fótbolti Segir dóttur sína hafa gert mistök með því að velja íslenska landsliðið Fótbolti Mátti ekki kaupa íbúð Babe Ruth Sport „Þetta snýst ekki bara um Sveindísi og Karólínu“ Fótbolti Hneig niður tvisvar á risamóti í golfi Golf Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Danska þjóðin í áfalli: „Verra en okkar versta martröð“ Sport Sjáðu þáttinn um N1 mótið: Sprungnar vindsængur, lukkuljón og Ronaldo hárgreiðsla Fótbolti Viðurkenndi sök og má ekki keppa í CrossFit í fjögur ár Sport Dagskráin í dag: Golf og aftur golf Sport Fleiri fréttir Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Sjá meira