Ungmenni ánægð með íslenska skóla 30. maí 2011 04:00 Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra
Nær öll íslensk ungmenni, eða 90 prósent, telja að háskólanám hér á landi sé góður kostur. Af ungmennum í 31 Evrópulandi er hlutfallið einungis hærra hjá þeim dönsku sem telja að háskólanám þar í landi sé aðlaðandi kostur, eða 91 prósent. Þetta kemur fram í nýrri könnun, Flash Eurobarometer on Youth, sem gerð var fyrir Evrópusambandið (ESB) í janúar síðastliðnum. Hlutfallið var lægst á Ítalíu og Litháen, en um 57 prósent ungs fólks í þessum löndum telja háskólana þar góða. ESB-meðaltalið var 76 prósent. Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, segir niðurstöðurnar ekki koma á óvart. „Þetta er í takti við þær rannsóknir sem gerðar hafa verið hér á landi á viðhorfi íslenskra ungmenna til skólastarfs almennt,“ segir Katrín. „Þessi rannsókn staðfestir þær vísbendingar að Íslendingar treysti skólakerfinu.“ Flestir sögðust sækja háskólanám til þess að fá betri atvinnutækifæri eða fá hærri laun eða vegna þess að þeir hefðu mikinn áhuga á ákveðnu efni. „Íslensk ungmenni eru mjög meðvituð um laun,“ segir Katrín. „Þau hafa til að mynda meiri áhyggjur af því að hafa lág laun í framtíðinni heldur en nágrannaþjóðirnar.“ Afar fáir sögðust stunda háskólanám til þess að bæta stöðu sína á vinnumarkaði með því að fara upp um hæfnisþrep. Þar var hlutfallið lægst meðal Íslendinga og Norðmanna. Afar hátt hlutfall þýskra ungmenna segist sækja háskóla til þess að auka hæfni sína á vinnumarkaðnum. Katrín segir umræðuna um hæfnisþrepin ekki hafa verið ríkjandi hér á landi, hvorki á vinnumarkaði né meðal launþega. Það gæti meðal annars skýrst af góðu atvinnuástandi hér á landi lengst af. Þá voru einnig afar fáir sem sögðust leggja stund á háskólanám til að auka tækifæri sín til þess að stofna eigið fyrirtæki. Þar voru Norðurlöndin fimm með lægst hlutfall en hæst var það í Rúmeníu. Katrín segir þetta sennilega skýrast af því að hér á landi, sem og á Norðurlöndunum, geti verið meiri áhersla á önnur atvinnutækifæri heldur en að beina fólki í þá átt að skapa þau sjálf. „Þetta gæti vissulega verið vísbending fyrir atvinnulífið í landinu,“ segir mennta- og menningarmálaráðherra. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Sérsveitin kölluð út: Fjöldi handtekinn eftir húsleit í Gnoðarvogi Innlent Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Erlent Fjórir handteknir í aðgerðunum í Gnoðavogi Innlent Erlendir hópar komi til Íslands í skamman tíma til að hnupla úr verslunum Innlent Tilkynnt um sjónskerðingu og sjálfsvígshugsanir eftir inntöku þyngdarstjórnunarlyfja Innlent Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Erlent Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Erlent Haraldur Briem er látinn Innlent Vara við eldislax í Haukadalsá Fréttir Gagnrýni á fegurðarsamkeppnir sé ekki niðurlæging í garð kvenna Innlent Fleiri fréttir Haraldur Briem er látinn Fjórir handteknir í aðgerðunum í Gnoðavogi Sérsveitin kölluð út: Fjöldi handtekinn eftir húsleit í Gnoðarvogi Erlendir hópar komi til Íslands í skamman tíma til að hnupla úr verslunum Líkamsræktarstöðin í Laugum rýmd: Reykurinn reyndist vera gufa Tilkynnt um sjónskerðingu og sjálfsvígshugsanir eftir inntöku þyngdarstjórnunarlyfja Gagnrýni á fegurðarsamkeppnir sé ekki niðurlæging í garð kvenna Líkamsræktarstöð World Class í Laugum rýmd vegna vatnsleka Skuggahliðar þyngdarstjórnunarlyfja og útskúfun vegna BDSM Ámálaða merkið þótti ekki nógu flott Slasaður eftir að tveir bílar skullu saman á hættulegum gatnamótum við Skógafoss Vísað úr landi eftir ólöglega dvöl: Togaði í hár konunnar, sparkaði í hana og mölvaði síma hennar Guðbjörg ráðin skólastjóri í tólfta grunnskóla Hafnarfjarðar Skyldleiki við lögregluþjón þvældist fyrir Stærðar borgarísjaki sást vestur af Látrabjargi „Hefði ég ekki verið kominn af stað væri ég ekki að tala við þig núna“ Kærumál seinkar verklokum við brúagerð í Gufudalssveit Bjóða þeim sem skera niður regnbogafána í heimsókn Valdar strætóleiðir ganga oftar og lengur Hafi ekki forsendur til að efast um ákvörðun Sjúkratrygginga Rannsókn á „bíræfnum“ þjófnaði á viðkvæmu stigi Niðurgreiðsla sálfræðiþjónustu verði tryggð Niðurgreidd sálfræðiþjónusta, tollar á lyf og hitamet Óprúttnir aðilar hóta rofinni rafmagnstengingu berist greiðsla ekki strax „Ég hef engar vísbendingar fengið um að þetta sé að gerast“ Allir gangi hamingjusamir úr nýjustu sundlaug landsins Ástandið á Gasa: 42 prósent telja að Íslendingar ættu að beita sér meira „Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Teiknaði hakakross á hurðina hjá nágrannanum Stálu myndavélum fyrir þrjár milljónir: „Grunar að þessu hafi verið stolið eftir pöntun“ Sjá meira