Helena átti stórleik og spilar í fyrsta sinn til úrslita með TCU Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 12. mars 2011 11:30 Helena sækir að varnarmanni New Mexico í leiknum í nótt. Mynd/AP
Helena Sverrisdóttir átti frábæran leik þegar að TCU tryggði sér sæti í úrslitaleiknum um meistaratitilinn í Mountain West-deildinni í bandaríska háskólaboltanum í nótt. TCU lagði New Mexico, 61-40, í undanúrslitunum í nótt og skoraði Helena 25 stig í leiknum. Hún var allt í öllu í sóknarleik liðsins og nýtti alls átta af þrettán skotum sínum í leiknum utan af velli. Hún tók sjö fráköst, gaf fimm stoðsendingar og stal boltanum einu sinni á þeim 32 mínútum sem hún lék í leiknum. Sigur TCU var öruggur eins og tölurnar bera með sér en þar sem liðið varð í öðru sæti deildarinnar komst liðið beint inn í undanúrslitin í úrslitakeppninni. Deildarmeistararnir, BYU, töpuðu nokkuð óvænt fyrir Utah í hinni undanúrslitaviðureigninni og mæta því Helena og félagar Utah í sjálfum úrslitaleiknum í kvöld. Utah varð í fimmta sæti í deildinni og þurfti að vinna alls þrjá leiki til að koma sér í úrslitaleikinn. Wyoming, liðið sem varð í þriðja sæti deildairnnar, féll líka heldur óvænt úr leik eftir að liðið tapaði fyrir New Mexico sem varð í sjöunda sæti deildarinnar. Helena og TCU eiga að harma að hefna gegn Utah en þær töpuðu einmitt fyrir því liði í undanúrslitunum í úrslitakeppninni í fyrra. Þetta var í þriðja sinn sem Helena keppir með TCU í undanúrslitunum en í fyrsta skipti sem hún kemst alla leið í úrslitaleikinn. Helena hefur átt frábært tímabil og var valin í fyrsta úrvalslið deildarinnar á dögunum, rétt eins og í fyrra. Með stigunum 25 sem hún skoraði í nótt varð hún annar stigahæsti leikmaðurinn í sögu skólans. Sigur TCU í nótt var einnig sögulegur þar sem að þetta var þriðji stærsti sigurinn í úrslitakepppni MWC-deildarinnar frá upphafi en hún var stofnuð árið 1999.
Körfubolti Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Íslenski boltinn De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Enski boltinn Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Körfubolti Fleiri fréttir Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ Sjá meira