Telur að ágæt málamiðlun hafi verið komin um Norðlingaöldu 23. ágúst 2011 19:25
Jón Kristjánsson, fyrrverandi ráðherra, sem kvað upp frægan úrskurð um Norðlingaölduveitu fyrir átta árum, segist enn þeirrar skoðunar að það hafi verið góð samkomulagsleið að leyfa veituna gegn því að fyrirhugað lón yrði utan friðlands Þjórsárvera. Í deilum um Norðlingaölduveitu og Þjórsárver árið 2003 litu margir á það sem Salomonsdóm sem Jón Kristjánsson, settur umhverfisráðherra, kvað þá upp en hann segist í viðtali við Ólöfu Björk Bragadóttur á Egilsstöðum í dag hafa lagt það til grundvallar í sínum úrskurði að koma lóninu út úr friðlandinu. Jón segir að úrskurðurinn hafi í fyrstu fengið mjög góðar undirtektir og menn hafi þá virst vera sáttir. Síðar hafi farið að bera á efasemdum náttúruverndarmanna sem gagnrýndu einkum áhrif veitunnar á fossaröðina fyrir neðan og að vatn færi inn í Eyvafen. Landsvirkjunarmenn hafi hins vegar heldur ekki verið hrifnir. Jón skoðaði sjálfur svæðið umdeilda á sínum tíma og kveðst í viðtalinu í fréttum Stöðvar 2 í kvöld standa við fyrri skoðun um nýta eigi svo hagkvæman orkukost og málamiðlun sé rétt. Í Íslandi í dag var svæðið skoðað og farið yfir helstu rök, með og á móti Norðlingaölduveitu.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira