Innlent

Stöðvuðu landaframleiðslu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði landaframleiðslu í iðnarhúsnæði í Hafnarfirði á sunnudag.

Lagt var hald á hátt í 200 lítra af landa og ýmsan búnað tengdan starfseminni. Karl um fimmtugt var handtekinn og yfirheyrður í þágu rannsóknarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×