Fótbolti

Ólafur: Mikil þreyta í mannskapnum en fínn sigur

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Við höfum ekki landað mörgum sigrum og því er þetta ánægjulegt,“ sagði Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, eftir leikinn í kvöld.

„Ég held að leikur liðsins hafi borið merki þess að leikmenn voru mjög þreyttir. Við skoruðum mark snemma leiks sem var frábært en þá fóru menn að vilja halda fengnum hlut og það sást á leik okkar“.

„Við ætluðum ekki að falla svona mikið til baka en það gerðist þegar Kýpverjar fjölguðu mönnum í sókninni“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×