Erlent

Sendiherra hvetur Íslendinga til að láta vita af sér

Stefán Lárus Stefánsson, sendiherra í Japan, hvetur Íslendinga sem eru á skjálftasvæðinu í Japan að láta vita af sér á Facebook. Hann segir sendiráðið reikna með því að um 65 Íslendingar séu þar og þegar hafa um þrjátíu manns haft samband.

Um 33 milljónir manna búa á stór-Tókíósvæðinu og samkvæmt nýjustu upplýsingum eru 32 látnir.

Stefán var við vinnu í sendiráðinu þegar stærsti skjálftinn reið yfir, en klukkan í Japan er níu tímum á undan íslenskum tíma.

Nokkrir stórir turnar, allt að 35 hæða, eru neðan við sendiráðið. „Þetta er í fyrsta sinn sem ég hef séð þá sveiflast til í jarðskjálfta," segir Stefán.

Þó hann hafi upplifað jarðskjálfta á Íslandi tók það nokkuð á að finna fyrir þessum stóra skjálfta. „Maður verður svona frekar hjálparlaus," segir Stefán.

Klukkan í Tókíó er 9 tímum á undan íslenskum tíma og því er farið að kvölda þar. Stefán leggur áherslu á að ná sambandi við sem allra flesta Íslendinga á svæðinu fyrir nóttina, og bendir á þjónustusíma íslenska utanríkisráðuneytisins, 5459900.


Tengdar fréttir

Tala látinna komin í 32

Nú er ljóst að 32 hafa látist hið minnsta þegar tíu metra há flóðbylgja skall á norðausturströnd Japans í morgun. Sky fréttastofan greinir frá þessu. Borgin Sendai varð verst úti. Flóðbylgjan kom í kjölfar gríðarlega öflugs jarðskjálfta sem mældist 8,9 á richter og átti upptök um 150 kílómetra undan ströndum Japans. Skjálftinn er sá stærsti í sögu Japans og sá sjöundi stærsti sem sögur fara af.

Öflugur skjálfti undan ströndum Japans - flóðbylgjuviðvörun gefin

Öflugur jarðskjálfti, 8,8 á richter-kvarðanum, reið yfir norðausturströnd Japans í morgun.Byggingar í höfuðborginni Tókíó skulfu í nokkrar mínútur og fólk þusti út á götur borgarinnar en engar fregnir hafa borist af manntjóni. Flóðbylgjuviðvörun var gefin út fyrir stórt svæði og gæti bylgjan orðið allt að sex metra há en viðvörunin gildir fyrir Japan, Rússland, Guam, Tæwan og Fillipseyjar. Einnig hefur viðvörun verið gefin út fyrir Indónesíu og Hawaí.

Tíu metra flóðbylgja skall á hafnarbæ

Tíu metra há flóðbylgja skall á hafnarbænum Sendai á norðausturströnd Japans í kjölfar hins öfluga skjálfta sem reið yfir í morgun undan ströndum Japans. Fréttamyndir sýna að bylgjan hefur hrifið með sér bíla og hús og miklir eldar loga í olíubirgðastöð við höfnina. Fyrstu fregnir hermdu að skjálftinn væri um 7,9 stig en nú hefur verið staðfest að hann mældist 8,9 stig. Engar fregnir hafa borist af manntjóni en nokkrir slösuðust í Tókíu þegar þak á skólabyggingu gaf sig.

Að minnsta kosti átta látnir í Sendai

Að minnsta kosti átta létust þegar tíu metra há flóðbylgja skall á hafnarbænum Sendai í Japan í morgun í kjölfar gríðarlega öflugs jarðskjálfta á svæðinu. Skjálftinn mældist 8,9 á richter skalanum og er sjöundi stærsti skjálfti í sögunni. Flóðbylgjan hreif með sér bíla og skip í höfninni og eyðilagði fjölda húsa. Þá hefur skemmtigarður Disney í Tókíó orðið illa úti auk þess sem mikill eldur geisar í olíuhreinsistöð í borginni Ichihara.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×