Prófessorinn er mikill krakki 26. október 2010 06:00 Bragi Valdimar Skúlason, Prófessorinn og Kiddi úr Hjálmum sem unnu saman að Diskóeyjunni.
Lagið Það geta ekki allir verið gordjöss með Páli Óskari situr í efsta sæti bæði Lagalistans og vinsældalista Rásar 2. Það hefur setið samanlagt í fimm vikur í efsta sæti yfir vinsælustu og mest spiluðu lög landsins. Lagið er á plötunni Diskóeyjan sem er nýkomin út. Á henni kennir Prófessorinn Óttarr Proppé börnum og öðrum tilheyrendum góða siði í fágunarskóla sínum við Diskóflóa. „Þetta er spurning um að vera ekki feiminn við að vera í stuði,“ segir Óttarr um Prófessorinn. Diskóeyjan er rokkópera eftir Braga Valdirmar Skúlason. Honum til halds og trausts við verkefnið voru Óttarr og Kiddi úr Hjálmum og fengu þeir til liðs við sig landskunna poppara, þar á meðal Sigtrygg Baldursson og Pál Óskar. „Prófessorinn er gömul týpa sem ég var að dunda við fyrir fullorðna,“ segir Óttarr og á þar við hljómsveitina Funkstrasse sem var virkust í kringum 1995. „Það var voða gaman en ekki verkefni sem greip mann svona gjörsamlega. Þegar honum var snúið upp á leikinn og æskufjörið kom sannleikurinn í ljós. Þá lifnaði hann almennilega við. Prófessorinn er í eðli sínu svo mikill krakki, eiginlega eins og Andrés Önd. Hann er ekki alveg fullorðinn og þarf heldur ekkert að vera fullorðinn.“ Óttarr viðurkennir að sumum krökkum finnist Prófessorinn, sem er einnig áberandi í rokksveitinni Dr. Spock, skrítinn. „Við höfum lent í því að krakkar hafa verið aðeins hikandi. Hann er líka svo ofsalega langur því hann er á svo háum hælum. En þegar hann beygir sig niður og fer að spjalla eru flestir krakkar að fatta hann.“ Memfismafían mun ásamt Prófessornum og föruneyti kynna Diskóeyjuna á næstu vikum og verður meðal annars efnt til tónleika í Hofi á Akureyri 28. nóvember. - fb
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Missti röddina á ögurstundu Lífið Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Lífið Jólahlaðborð og jólabröns á verði sem kemur á óvart Lífið samstarf Fleiri fréttir „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Sjá meira