Forseti hefur rætt við forystumenn stjórnarflokkanna Heimir Már Pétursson skrifar 4. janúar 2010 15:31
Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands fundaði í gær með Jóhönnu Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra í sitt hvoru lagi vegna Icesave laganna. Ekkert hefur verið gefið upp um hvað forsetanum og ráðherrunum fór á milli en telja má víst að þar hafi flokksleiðtogar stjórnarflokkanna m.a. gert forseta grein fyrir hvernig ríkisstjórnin muni bregðast við, synji forseti því að staðfesta lögin. Opinber heimsókn forsetans til Indlands hefst hinn 12. janúar í næstu viku og stendur til 16. janúar, en þar mun hann m.a. taka við Nehruverðlaununum sem ákveðið var að veita honum á síðasta ári. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar fór Dorrit forsetafrú af landi brott í gær í einkaerindum. Samkvæmt sömu heimildum mun forsetinn ætla að hitta hana í útlöndum á miðvikudag, áður en þau halda í hina opinberu heimsókn. Ef það er rétt að forsetinn sé á leið úr landi er líklegt að hann muni ákveða sig í Icesavemálinu áður en hann fer og þá væntanlega í síðasta lagi á morgun. Ekkert segir um það í stjórnarskrá hvort forsetinn þurfi að staðfesta eða synja lögum staðfestingar innan tiltekins frests. Aðeins að afhenda beri honum samþykkt lög frá Alþingi innan tveggja vikna frá því Alþingi afgreiðir þau. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar hefur forsetinn ekki rætt við forystufólk stjórnarandstöðuflokkanna frá því hann fékk Icesave lögin í hendur. Helstu aðstoðarmenn forsetans á skrifstofu hans sitja þessa stundina á fundi og ekkert hefur verið gefið upp um það hvort búast megi við ákvörðun hans í dag eða ekki.
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Erlent Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Innlent Fleiri fréttir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Sjá meira