Lífið

Níu manna fjölskylda freistar gæfunnar

Það er enginn hægðarleikur að ferðast til útlanda með alla fjölskylduna. Vefsíða keppninnar er á slóðinni www.greatestholiday.radissonblu.com.
Það er enginn hægðarleikur að ferðast til útlanda með alla fjölskylduna. Vefsíða keppninnar er á slóðinni www.greatestholiday.radissonblu.com.

„Ég rakst á þessa síðu á netinu og ákvað að að skrifa stutt um mína stóru fjölskyldu, enda höfum við aldrei getað farið í frí öll saman," segir Guðrún Lilja Hólmfríðardóttir húsmóðir sem skráði sína 9 manna fjölskyldu í lukkuleik Radison Sas hótelkeðjunnar.

Leikurinn gengur út á að skrifa stutta sögu um sjálfan sig og af hverju maður á skilið að vinna fríar 365 nætur á Radison Blu hótelum um allan heim. Almenningur fer svo inn á síðuna og kýs þann keppenda sem honum líst á. Guðrún og fjölskylda hennar er þegar þetta er skrifað í 14 sæti af rúmlega 6.300 keppendum. Kosningin stendur til 24 júlí.

„Ég átti alls ekki von á því að okkur mundi ganga svona vel, svo núna hleypur smá keppnisskap í mann. Ég er búin að vera með kosningaherferð á Facebook og er dugleg að hvetja alla sem við þekkjum til að kjósa," segir Guðrún Lilja sem býr á Akranesi ásamt manni sínum Hákoni Valssyni sjómanni. Þau hafa aldrei farið til útlanda með öll sjö börnin enda segir Guðrún að það sé fjárhagslega ómögulegt.

Börnin eru allt frá 20 ára niður í fjögurra ára og hluti barnanna hefur aldrei farið til útlanda. „Tanja Sif 12 ára dóttir okkar er einhverf og því frekar erfitt að ferðast með hana. Hún er hins vegar með borgina París og Eiffelturnin á heilanum og spyr næstum daglega hvenær við ætlum að fara þangað. Ef við mundum hreppa hnossið mundi það vera fyrsti áfangastaðurinn af mörgum," segir Guðrún Lilja. - áp

Hér er heimasíða keppninnar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×