Lífið

Sátt við vöxtinn

Christina Hendricks segist vera ánægð með vöxt sinn og segist líta út eins og kona en ekki stelpa.
Christina Hendricks segist vera ánægð með vöxt sinn og segist líta út eins og kona en ekki stelpa. nordicphotos/getty

Leikkonan Christina Hendricks, sem fer með hlutverk í sjónvarpsþáttunum Mad Men, segist ánægð með líkamsvöxt sinn og henni líði eins og konu, en ekki stúlku.

„Þegar ég starfaði sem fyrirsæta eyddi ég miklum tíma á Ítalíu. Mér þótti mjög gott að fá mér cappucino og í kjölfarið bætti ég nokkrum kílóum á mig og mér fannst ég dásamleg. Stundum afklæddi ég mig fyrir framan spegilinn heima hjá mér og dáðist að líkama mínum. Mér fannst ég líta út eins og kona og ég hef aldrei reynt að létta mig því ég elska mig eins og ég er," sagði leikkonan, sem þykir ein fallegasta kona heims í dag.

Hendricks hefur þó fengið sinn skerf af gagnrýni og vilja sumir meina að hún sé helst til of þung. „Ég gerði þau mistök eitt sinn að lesa það sem skrifað var um mig í blöðunum og ég hugsaði með mér: „Mikið er fólk kvikindislegt." Ég man enn allt það ljóta sem sagt var, þrátt fyrir allt það jákvæða sem einnig hefur verið skrifað. Þess vegna þurfa leikarar sálfræðiaðstoð."










Fleiri fréttir

Sjá meira


×