Hera Björk, Stefán Hilmars og Egill Ólafs taka yfir Salinn 7. maí 2010 15:45 Hera Björk hefur í nógu að snúast þessa dagana en auk undirbúnings fyrir Eurovision kemur hún fram á sex tónleikum í Salnum.
Kópavogsdagar hefjast á morgun og er margt á dagskrá en dagarnir eru að þessu sinni helgaðir minningu Sigfúsar Halldórssonar tónskálds. Ásamt sýningu í Tónlistarsafni Íslands á ýmsu efni sem tengist ferli hans hefur Björn Thoroddsen sett saman lítið kombó með þeim Jóhanni Hjörleifssyni, Jóni Rafnssyni og Pálma Sigurhjartarsyni. Munu þeir ásamt söngvurunum Heru Björk Þórhallsdóttur, Stefáni Hilmarssyni og Agli Ólafssyni flytja nær tuttugu lög eftir Sigfús á sex tónleikum í dag og á morgun, og á föstudag og laugardag um næstu helgi. Björn segir það hafa komið sér á óvart þegar hann stóð fyrir námskeiði fyrir ungt tónlistarfólk í Molanum að krakkar um tvítugt þekktu allir lög Sigfúsar. „Þau standast tímans tönn," segir hann. Tónbygging þeirra sé af evrópskum meiði, frekar en bandarískum þótt Björn og hans félagar leggi á þau djassslikju. „þau eru raunar frekar með ítölskum brag," segir Björn. Miðasala er á tónleikaröðina í Salnum og hér á midi.is og er þegar vel selt á tónleikaröðina enda Sigfús uppáhald margra og því heiðursess hans á Kópavogsdögum auðskilinn og sjálfsagður. Tondeleyo og Litla flugan eru meðal laga Sigfúsar. Sigfús Halldórsson fæddist 7. september 1920 og ólst upp í Reykjavík. Sigfús varð snemma áberandi í bæjarlífinu. Hann vann sem sendill frá unga aldri í Útvegsbankanum sem þá var í miðju samfélagsins í þorpinu Reykjavík og vann þar allt til 1944. Einkar ljúf lund hans og elskulegt fas aflaði honum snemma vinsælda og svo sú náttúrugáfa sem fólst í söngrödd hans og hljóðfæraleik. Hann varð á unga aldri kunnur sem skemmtikraftur í samkvæmislífi og tók að koma fram sem slíkur fyrir tvítugsaldurinn. Hann lék í óperettum og revíum í upphafi stríðsins en hugur hans hneigðist ekki síður að myndlist: Hann stundaði nám í málaraskóla Marteins Guðmundssonar og Björns Björnssonar, en var í hópi þeirra sem leituðu erlendis til náms og lauk brottfararprófi með fyrstu verðlaun í leiktjaldahönnun og málaralist frá hinum þekkta skóla Slade Fine Art School 1945. Hann sótti sér framhaldsmenntun við Stokkhólmsóperuna 1947 og 1948 og starfaði á málarasal Þjóðleikhússins 1950 til 1952, hann vann hjá J. Þorláksson & Norðmann 1954 til 1955, var starfsmaður á bókasafni Bandaríkjahers 1955 til 1956, á skattstofu Reykjavíkur 1957 til 1968. Fastur teiknikennari við Langholtsskóla 1968 til 1981, auk þess sem hann hélt fjölda námskeiða í teiknun á sama tíma. Þá ferðaðist hann með leikflokkum um landið frá 1939 og allt til 1955. Fyrstu hljóðrit Sigfúsar sem urðu kunn hér á landi voru hans eigin sönglög. Hann mun hafa samið um 100 tónsmíðar af ýmsu tagi og er nú unnið að því að koma reiðu á safn hans til útgáfu, en margir listamenn hafa sóst eftir að syngja hans þekktustu lög sem eru alþýðueign. Sigfús byrjaði ungur að mála og hefur um dagana haldið fjölda málverkasýninga, hérlendis og erlendis bæði einn og með öðrum. Hann var kjörinn heiðursborgari Kópavogs 1994 og var það í þriðja sinn sem Kópavogsbúar völdu sér heiðursborgara en þau Steinunn kona hans settust að í bænum 1963. pbb@frettabladid.is
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Missti röddina á ögurstundu Lífið Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Lífið Jólahlaðborð og jólabröns á verði sem kemur á óvart Lífið samstarf Fleiri fréttir „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Sjá meira