Lífið

Mel Gibson neitar að hafa lamið barnsmóður sína

Leikarinn frægi Mel Gibson er að skilja við barnsmóður sína, Oksönu Grigorievu, sem sakar hann um að hafa gengið í skrokk á sér.
Leikarinn frægi Mel Gibson er að skilja við barnsmóður sína, Oksönu Grigorievu, sem sakar hann um að hafa gengið í skrokk á sér. nordicphotos/getty

Skilnaðir í heimi fræga fólksins eru sjaldan á rólegu nótunum og nú er leikarinn og leikstjórinn Mel Gibson í sviðsljósinu. Hann hefur slitið samvistum við barnsmóður sína, rússnesku söngkonuna Oksönu Grigorievu, og skiptast þau á að úthúða hvort öðru í fjölmiðlum vestanhafs.

Fyrr í vor gaf Gibson út þá yfirlýsingu að parið, sem á eina 7 mánaða dóttur saman, hefði vaxið hvort frá öðru og eru þau hinir verstu óvinir í dag ef marka má útspil þeirra í kringum sambandsslitin. Nú hefur hin rússneska Oksana meðal annars sakað Gibson um að ganga í skrokk á sér, brjóta í sér tennur og gefa sér heilahristing í janúar síðastliðnum. Gibson hefur á móti sakað Oksönu um að hafa hrist barn þeirra.

Hann neitar öllum ásökunum hennar og segir hana einungis vera að skemma mannorð hans. Oksana hefur einnig sakað Óskarsverðlaunahafann um að gefa henni ekki nógu stórar upphæðir í meðlagsgreiðslur en hún býr í milljón dollara höll leikarans með bíl og þjónustufólk. Lögfræðingar söngkonunnar segja hana vera mjög hrædda við Gibson og að hún sé nú búin að fá nálgunarbann á hann og vilji ekki að hann eigi nein samskipti við dóttur þeirra.

Gibson og Oksana byrjuðu saman fyrir rúmu ári, um sama leyti og leikarinn skildi við eiginkonu sína til 28 ára, Robyn Gibson. Söngkonan var til málamynda hjá útgáfufyrirtæki Gibsons og voru margar sögusagnir um framhjáhald Gibsons með henni áður en skilnaðurinn við eiginkonuna varð opinber. Hún á fyrir barn með breska leikaranum Timothy Dalton.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×