Maður verður seint ríkur á dauðarokkinu 10. desember 2010 06:00 Rokkararnir í Beneath hafa gert útgáfu- og dreifingarsamning við fyrirtækið Unique Leader Records.
Liðsmenn dauðarokkssveitarinnar Beneath hafa samið við bandarískt plötufyrirtæki um útgáfu og dreifingu á tónlist sinni á heimsvísu. „Við erum allir mjög sáttir. Þetta er það sem við erum búnir að vera að stefna að,“ segir Gísli Sigmundsson úr dauðarokkssveitinni Beneath. Sveitin hefur skrifað undir samning við Unique Leader Records um útgáfu og dreifingu á plötum sveitarinnar á heimsvísu. Plötufyrirtækið, sem er með höfuðstöðvar í Kaliforníu, sérhæfir sig í dauðarokki og hentar Beneath því mjög vel. „Það eru ansi mörg bönd þarna sem eru helvíti hörð, þannig að við teljum okkur vera í góðum félagsskap,“ segir Gísli. Spurður út í samninginn segir hann: „Þetta er ágætur samningur en ég held að maður verði seint ríkur á dauðarokkinu. Þetta hangir á því hvað við náum að túra mikið og fylgja þessu eftir. Eins og staðan er í dag eru bönd að fá stóran hluta af innkomu sinni með því að túra og selja boli.“ Fyrsta stóra plata Beneath er væntanleg á næstu mánuðum. Hún var tekin upp í Sundlauginni og Stúdíó Fosslandi og hljóðblönduð af Daniel Bergstrand í Dug Out Studios í Uppsölum í Svíþjóð. Bergstrand hefur á síðustu árum skipað sér sess sem einn af færustu upptökustjórunum í harðara rokki. Hann hefur unnið með In Flames, Behemoth og Meshuggah svo fáeinar þekktar dauðarokkssveitir séu nefndar. Beneath gaf út fjögurra laga þröngskífuna Hollow Empty Void í febrúar á þessu ári í gegnum fyrirtækið Mordbrann Musikk. Skífunni hefur verið tekið vel hérlendis sem erlendis. Vorið 2009 vann Beneath fyrstu Wacken Metal Battle keppnina á Íslandi og spilaði í kjölfarið á Wacken Open Air hátíðinni í Þýskalandi. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Að vera neitað um listamannalaun reyndist algjör frelsun Lífið Festist í lyftu í New York Lífið „Ég er pottþétt ekki á leiðinni til Íslands“ Lífið Tímabilið sem flestir vilja gleyma Lífið Krakkatía vikunnar: Fáni, Esbjerg og Ormstunga Lífið Alma stolt af syninum Lífið Tæplega 28 þúsund í mat á mánuði: „Hvar voru þið að svindla?“ Lífið Söngvari 3 Doors Down látinn Lífið Gerði leigusamning við krabbameinið Lífið Hamilton ætlar ekki að bruna Lífið Fleiri fréttir Hamilton ætlar ekki að bruna Tímabilið sem flestir vilja gleyma Festist í lyftu í New York Að vera neitað um listamannalaun reyndist algjör frelsun Krakkatía vikunnar: Fáni, Esbjerg og Ormstunga Þúsund hlauparar í stuði í Norðurljósahlaupi ON Söngvari 3 Doors Down látinn „Ég er pottþétt ekki á leiðinni til Íslands“ Alma stolt af syninum Hitnar í kolunum hjá Heated Rivalry-stjörnum? Gerði leigusamning við krabbameinið Fréttatía vikunnar: Framsókn, Epstein-skjölin og Dagur Sig Tæplega 28 þúsund í mat á mánuði: „Hvar voru þið að svindla?“ Karlmennskan rís úr öskunni Sjö dýrustu eignirnar sem seldust árið 2025 Alan Carr á Íslandi „Ungir drengir eru búnir að láta segja sér að þeir séu eitraðir“ Gummi Emil á leið í fæðubótarefnin Fannar og Vala keyptu fyrir 170 milljónir í Kjalarlandi Hefur verið 73 kíló í 55 ár en bætti aðeins á sig þegar bjórinn var leyfður Viðar Örn hefur störf á Sólheimum Geoff og Ásta Margrét nýtt par Prinsinn og prinsessan ætla að flytja heim á næsta ári Vill 700 milljónir fyrir höllina Drengurinn sem dó Nakinn á kóræfingu Laufey fékk sæta kveðju frá yngsta Grammy-verðlaunahafa sögunnar „Skýið er bleikt og við erum sannarlega enn þá á því skýi og í sjokki“ Síðasti leynigesturinn opinberaður „Hvernig ég er að gera þetta núna er ekki hægt til lengri tíma“ Sjá meira