Innlent

Ellefu ára barni boðið að reykja hass

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ellefu ára gömlu barni í Austurbæjarskóla var boðið að reykja hass. Þá hefur þrálátur orðrómur verið um að fíkniefnaneyslu nemenda í Tækniskólanum í Reykjavík og að þar viðgengist fíkniefnasala. Það var meðal annars á þessum forsendum sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ákvað að gera fíkniefnaleit í Tækniskólanum í Reykjavík þann 11. febrúar síðastliðinn.

Umboðsmaður Alþingis krafði lögregluna á höfuðborgarsvæðinu um skýringar á fíkniefnaleitinni. Stefán Eiríksson lögreglustjóri segir, í samtali við Vísi, að erindi umboðsmanns hafi verið svarað þann 4. mars síðastliðinn. Í svarinu kemur fram að við leitina fundust leifar af fíkniefnum og tæki til fíkniefnaneyslu inni á salerni í skólanum.

Í fréttum RÚV kom fram að ekki var hægt að sanna hver bauð ellefu ára gamla piltinum efnin.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×