Erlent

Alexander McQueen svipti sig lífi

Alexander McQueen ásamt Björk en hún er klædd í kjól sem hann hannaði.
Alexander McQueen ásamt Björk en hún er klædd í kjól sem hann hannaði.
Breski fatahönnuðurinn Alexander McQueen er látinn en hann framdi sjálfsmorð samkvæmt The Daily Mail. Alexander þótti einn af frumlegustu hönnuðum sinnar kynslóðar.

Heimildarmaður blaðsins innan skrifstofu Alexanders segir í The Daily Mail að missirinn sé harmrænn. Heimildarmaðurinn neitar að tjá sig frekar um málið af virðingu við fjölskyldu Alexanders.

Alexander McQueen var uppgvötaður af fatahönnuðinum Isabellu Blow sem sjálf svipti sig lífi árið 2007.

Björk Guðmundsdóttir er ein af þeim sem hefur gengið í fötum eftir Alexander.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×